„Við ítarlega leit fundust ekki staðfest ummerki að innbrot hafi átt sér stað“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, fór þess á leit við rekstrarfélag stjórnarráðsins að það kannaði hvort brotist hefði verið inn í tölvu hans.
Kjarninn greindi frá þessu í dag.
Þar er vísað í svar frá rekstrarfélaginu þar sem segir að félaginu hafi borist beiðni frá Sigmundi þann 1. apríl síðastliðinn um að skoða tölvu hans vegna rökstudds gruns um mögulegt innbrot. Tveimur dögum síðar, eða þann 3. apríl, var Wintris-þátturinn sýndur í Kastljósi Sjónvarps þar sem greint var frá aflandsfélagi Sigmundar og eiginkonu hans.
Sigmundur sagði á haustþingi miðstjórnar Framsóknarflokksins um helgina að hann væri þess fullviss um að brotist hefði verið inn í tölvu hans. „Ég veit að það var brotist inn í tölvuna hjá mér,“ sagði Sigmundur. Hann sagði einnig að hann hefði verið eltur á ferðum sínum erlendis af kröfuhöfum í þrotabú föllnu bankanna. Þetta hefði gerst meðan hann var forsætisráðherra.
„Þann 1.apríl 2016 barst félaginu beiðni frá forsætisráðherra um að skoða tölvu ráðherra vegna rökstudds gruns hans um mögulegt innbrot. Við ítarlega leit fundust ekki staðfest ummerki að innbrot hafi átt sér stað,“ segir í svarinu sem Kjarninn vísar til.
Í frétt Vísis fyrr í dag var greint frá því að embætti ríkislögreglustjóra hefði ekki verið tilkynnt um mögulegt innbrot í tölvu fyrrverandi forsætisráðherra. Orðrétt sagði í svari ríkislögreglustjóra til Vísis: „Embætti ríkislögreglustjóra hefur ekki verið tilkynnt um innbrot í tölvu fyrrverandi forsætisráðherra.“