Birgir Þór gagnrýnir íslenskt samfélag
„Mér finnst stundum eins og íslenska þjóðin sé eins og einhver meðvirk fjölskylda á Arnarnesinu sem býr í geðveikt flottu húsi með gosbrunn og hund í garðinum. Þessi fjölskylda er svo upptekin við að líta vel út að ofbeldið, alkahólisminn, anorexían og þunglyndið sem á sér stað innan veggja heimilisins er allt falið fyrir nágrönnunum.“
Þetta segir lögreglumaðurinn Birgir Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi lögga, í nýjum pistli á Facebook. Birgir segir að í stað þess að horfast í augu við raunveruleikann brosi fólk sínu tannhvíta brosi á sjálfhverfum Instagram sjálfum.
„Það er svo mikilvægt að vera flottur að öllum vandamálunum er sópað undið teppið. Öll mikilvægu fjölskyldugildin eru orðin að aukaatriðum en samt vita allir að á endanum mun allt springa.“
Birgir segir að nú séum við aftur orðið samfélag í góðum gír mitt í nýju góðæri.
„Við erum (aftur) flutt í flotta hverfið and we like it a lot. Húsið okkar er fullt af gestum og við sýnum þeim flotta garðinn okkar með öllum okkar geysum, gullfossum og krúttlegu gæludýrunum Hrefnu og Lunda. Þetta lúkk skiptir okkur svo miklu málið að við erum algjörlega tilbúin að sópa vandamálunum undir teppið. Þetta jafnar sig örugglega allt saman, er það ekki? Bara svona eins og ofbeldisfulli eiginmaðurinn hættir pottþétt af sjálfsdáðum að lemja og alkahólisminn gengur yfir.“
Lögregluþjónninn skoðanaglaði bendir á að á næstunni munu samfélagsmiðlarnir fyllast af myndum af stoltum börnum með nýjar skólatöskur á leiðinni í í skólann á fyrsta skóladegi vetrarins. „Geðveikt krúttlegt.“ Við krökkunum taka kennarar sem eru að gera sitt allra allra besta við að halda uppi skólakerfi sem er gjörsamlega að hrynja.
„Við treystum kennurunum fyrir því mikilvægasta sem við eigum. Við viljum að komið sé fram við barnið okkar að þeim verðleikum sem það á skilið en gerum okkur ekki alltaf grein fyrir því að það er ekki hægt. Kennarar eru nefnilega ekki töframenn.“
Birgir bendir í þessu samhengi á að það lítur vel út á pappír að vera með „einstaklingsmiðað nám“ en það er vita vonlaust að framfylgja því þegar kennarar eru með allt of marga nemendur eins og er allt of algengt.
„Og af hverju skyldi það vera þannig? Jú, því it is all about the money.“
Birgir bendir á að auknar kröfur sem settar hafa verið á kennara á síðustu árum eru verður svo bara til þess að það bitnar á börnunum okkar til hins verra. Kennarar eru nefnilega bara einstaklingar en ekki vélar.
„Fimm ára háskólanám er ekki einu sinni nóg til þess að láta það gerast. Lengra nám, aukið álag og meiri kröfur skila sér svo ekki einu sinni í launaumslagið eins og kennurum var lofað. Langt frá því. Kennarar eru láglaunastétt og við dirfumst að tala um góðæri. Við lítum meira að segja á það sem mælikvarða á góðæri að kennarar flýi úr stéttinni í önnur störf. Við ættum að skammast okkar.“
Birgir bendir jafnframt á að sömu sögu sé að segja um löggæsluna á Íslandi. „Á öllum mínum árum sem lögreglumaður hef ég aldrei upplifað eins slæma stöðu og í dag. Á meðan álagið eykst dag frá degi er lögreglan holuð að innan,“ segir hann og bætir við.
„Vöntun á lögreglumönnum er gífurleg og eins og hjá kennurunum þá liggur straumurinn bara í aðra áttina. Úr lögreglunni.“
Hann segir starfið, ábyrgðina og álagið í engu samræmi við kjörin. Klúðrið við framkvæmdina á tilfærslu lögreglunáms yfir á háskólastig einn kafli til viðbótar.
„Vegna þess mun manneklan aukast enn frekar á næstunni og ef fer sem fer mun ómenntuðum lögreglumönnum fjölga til muna á næstu árum. Á meðan við færum lögreglumenntun á háskólastig ætlum við að rétta næsta manni lögguföt og segja honum að fara út að vinna. Hvílíkt rugl!“
Undir lok pistilsins segir Birgir. „Við verðum að hætta þessari meðvirkni og sýndarmennskugóðæri. Við þurfum að viðurkenna að samfélagið er sár sjúkt og ef við höldum áfram á sömu braut mun þetta allt hrynja. Við erum möl brotin fjölskylda sem verður að hefja uppbyggingaferli ef við ætlum að meika það. Og við þurfum að byrja strax.“