fbpx
Miðvikudagur 12.nóvember 2025
Fókus

„Lengi vel hataði ég Garðabæ“

Kolbrún Bergþórsdóttir
Laugardaginn 20. ágúst 2016 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margt hefur verið sagt um Þorkel Mána Pétursson og mörgu hægt að bæta við. Í nærri því áratug hefur vélbyssukjaftur Mána ómað í útvarpstækjum landsmanna í gegnum þáttinn Harmageddon á X-inu 977 sem hann stýrir ásamt Frosta Logasyni. Þeim Harmageddonbræðrum er fátt heilagt og ekkert óviðkomandi. Ásamt því að vera í útvarpi nánast á hverjum degi þá starfar Máni einnig sem umboðsmaður og hefur starfað sem knattspyrnuþjálfari. Ari Brynjólfsson hitti Mána og fór yfir stöðuna á honum og samfélaginu öllu.

Harmageddon hefur verið í loftinu í nærri tíu ár og hefur náð miklum vinsældum fyrir beinskeytt viðtöl, harða gagnrýni þeirra Frosta og Mána á Þjóðkirkjuna og undarlegar uppákomur í beinni útsendingu. Máni hefur starfað á X-inu frá árinu 1997 þegar hann var rétt skriðinn yfir tvítugt og nýkominn úr meðferð. Hann lýsir sjálfum sér sem frjálshyggjusósíalista, femínista og Garðbæingi.

„Lengi vel hataði ég Garðabæ, helst af því að ég elst upp í ömurlegu skólakerfi í Garðabæ og að mörgu leyti skrýtnu samfélagi. Æskan var ævintýralega skemmtileg fyrir utan erfiðleikana í skólakerfinu, foreldrar mínir voru frábærir. Þegar ég var ungur þá var þetta algjör plebbastaður og þegar ég var tvítugur þá var Garðabær ekki þekktur fyrir neitt nema að þar byggju bara pabbastrákar. Svo seinna nær maður sátt við sjálfan sig. Ég er mótaður af bænum, ég er Stjörnumaður, maður á að elska það sem mótar mann og ég væri ekki ég nema út af Garðabæ. Nú lít ég á bæinn og sé stóran hóp af afreksíþróttamönnum, tónlistarmönnum og rithöfundum frá Garðabæ, það er merkileg staðreynd að allt þetta hæfileikaríka fólk er yfirleitt ekki í Sjálfstæðisflokknum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

89 ára næringarfræðingur varpar ljósi á hvað hún borðar til að halda heilsunni góðri

89 ára næringarfræðingur varpar ljósi á hvað hún borðar til að halda heilsunni góðri
Fókus
Í gær

Alinn upp á Kvíabryggju – ,,Ég ætla að verða heimsmeistari”

Alinn upp á Kvíabryggju – ,,Ég ætla að verða heimsmeistari”
Fókus
Fyrir 2 dögum

Allt breyttist hjá Dagbjörtu þann 2. desember – „Líf mitt hefur aldrei verið eins“

Allt breyttist hjá Dagbjörtu þann 2. desember – „Líf mitt hefur aldrei verið eins“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Henni virðist ætlað að koma inn samviskubiti hjá mæðrum“

„Henni virðist ætlað að koma inn samviskubiti hjá mæðrum“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segist hafa séð flygildi fyrir ofan hús Þorgríms Þráinssonar

Segist hafa séð flygildi fyrir ofan hús Þorgríms Þráinssonar