Hátt í þrjú hundruð viðburðir fóru fram á hinni árlegu Menningarnótt Reykjavíkurborgar síðastliðinn laugardag. Dagskráin hófst upp úr hádegi og lauk eins og venja er með stórtónleikum Rásar 2 á Arnarhóli og flugeldasýningu við Reykjavíkurhöfn klukkan 23.00.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri setti hátíðina í Álfasteinsgarði Grjótaþorps við lúðrablástur tónleikasveitar frá Þýskalandi.
Ljósmyndari DV var á svæðinu og tók eftirfarandi myndir: