fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Fókus

„Sakna Arons alla daga“

Arna Rós hleypur í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar Birtu landssamtökum

Auður Ösp
Föstudaginn 19. ágúst 2016 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég sakna Arons alla daga og mun aldrei geta skilið hvers vegna þetta gerðist en vonandi lærir maður að lifa með þessum mikla missi. Við tökum bara einn dag í einu,“ segir Arna Rós Hall Arnarsdóttir, systir Arons Andra sem lést af óútskýrðum orsökum í ágúst í fyrra, aðeins 12 ára að aldri. Hún segir skipta miklu máli að þiggja þá hjálp sem í boði er eftir jafn hrikalegt áfall, og það gerði hún og fjölskylda hennar. Næstkomandi laugardag hyggst Arna Rós hlaupa 10 kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar Birtu landssamtökum en þar hefur fjölskyldan fengið ómetanlegan stuðning í sorginni.

Arna Rós er 19 ára gömul og er að hefja nám í umhverfis- og byggingaverkfræði við Háskóla Íslands í haust. Hún er elst þriggja systkina en á eftir henni kemur Aron Andri og síðan Amilía Salka sem verður fjögurra ára í lok ágúst. Aroni Andra var lýst afskaplega fallega í minningargreinum og greinum sem voru skrifaðar í kjölfar fráfalls hans en Arna Rós lýsir litla bróður sínum sem skemmtilegum og hressum strák með góða sál – og afar brosmildum:

„Hann var mjög hreinskilinn og einlægur. Hann var framúrskarandi námsmaður, stóð sig vel í öllu. Hann var afskaplega klár. Áhugamálin hans voru Lego, Minecraft, tölvuleikir, kvikmyndir, sjónvarpsþættir og ýmislegt föndur. Gömul sál í ungum líkama, mjög þroskaður miðað við aldur. Hann var mjög hugmyndaríkur, útsjónarsamur, listrænn og klár föndrari. Hann var góður í öllu því sem hann tók fyrir sér hendur og hafði áhuga á.“

Hleypur 10 kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar Birtu landssamtökum.Mynd/Arnar Már Hall Guðmundsson.
Arna Rós Hall Arnarsdóttir Hleypur 10 kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar Birtu landssamtökum.Mynd/Arnar Már Hall Guðmundsson.

Vaknaði aldrei aftur

Aron Andri hafði að sögn Örnu Rósar alltaf verið hraustur og engan grunaði að hann væri með undirliggjandi mein. „Fyrir utan að hann var greindur með flogaveiki ári áður en hafði ekki fengið flogakast frá því um jólin á undan.

Fyrir hádegi 10. ágúst 2015 komum við fjölskyldan heim úr fjölskylduferð á Flórída þar sem við áttum mjög góðan tíma saman og héldum meðal annars upp á 12 ára afmæli Arons Andra. Þreytt eftir næturflug frá Bandaríkjunum þá ætluðum við öll að leggja okkur í tvo til þrjá tíma og fórum öll að sofa,“ segir Arna Rós þegar hún rifjar upp aðdragandann að því þegar Aron Andri fannst látinn, fyrir rúmu ári.

„Pabbi fór að tékka á honum þegar hann vaknaði upp stuttu eftir að við öll sofnuðum og ég vaknaði við mikil öskur, skömmu síðar kom lögregla og svo sjúkrabílar, tilraunum til endurlífgunar var haldið áfram alla leið niður á spítalann. Aron vaknaði ekki aftur.“

Ekki er vitað með vissu hvað varð til þess að Aron dó annað en að hjarta hans stoppaði fyrirvaralaust í svefni. Hann var úrskurðaður látinn á spítalanum eftir að tilraunir til endurlífgunar báru ekki árangur.

„Það skiptir miklu máli að leita eftir og þiggja allan stuðning sem hægt er að fá eftir svona hrikalegt áfall.“Mynd/Arnar Már Hall Guðmundsson
Fjölskyldan á góðri stund „Það skiptir miklu máli að leita eftir og þiggja allan stuðning sem hægt er að fá eftir svona hrikalegt áfall.“Mynd/Arnar Már Hall Guðmundsson

Hvernig tókust þið á við sorgina og söknuðinn sem fjölskylda? Og hvernig hefur þér gengið að takast á við þennan missi?

„Við fengum góða aðstoð frá spítalanum, bæði frá sjúkrahússprestum og áfallateymi spítalans. Það skiptir miklu máli að leita eftir og þiggja allan stuðning sem hægt er að fá eftir svona hrikalegt áfall. Við munum alla tíð takast á við sorgina og söknuðinn en við erum að læra að lifa með því. Foreldrar mínir hafa mætt á fundi frá því í vetur bæði hjá Birtu og Nýrri dögun sem eru opnir öllum og þau fóru svo í stuðningshóp vegna barnsmissis í vor á vegum Nýrrar dögunar, stuðningshópurinn hefur reynst þeim ómetanlegur í sorgarferlinu.

Litla systir mín, hún Amilía Salka, var svo lítil þegar þetta gerðist fyrir ári en hún var þá að verða þriggja ára. Hún hefur samt líka glímt við sorgina og virtist fljótt skilja endanleikann. Það varð breyting á henni. Hún saknar Arons, stóra bróður síns, og talar oft um hann.“

Tók á að vakna á morgnana

Arna Rós segir það hafa hjálpað sér mikið að hafa daglega rútínu. „Fljótlega eftir að Aron dó þá byrjaði ég á mínu lokaári til stúdents í Kvennó. Það var erfitt að einbeita sér 100 prósent að náminu en ég naut skilnings þar vegna aðstæðna minna m.a. þar sem bróðurmissirinn hafði áhrif á skólasóknina. Ég lagði mikið í námið og útskrifaðist með góðar einkunnir sem stúdent síðasta vor. Það hefur líka hjálpað mikið að halda áfram að stunda hreyfingu hjá Boot Camp en ég æfði líka crossfit á tímabili síðasta vetur. Ég fékk mikinn stuðning frá bæði kennurunum mínum í Kvennó og þjálfurum í Boot Camp. Það tók mikið á að vakna á hverjum morgni, mæta í skólann, mæta á æfingar, fara í vinnuna og svo framvegis. En með tímanum þá fór það að verða auðveldara. Það að halda þessari grundvallarrútínu hjálpaði mikið.“

„Mjög hugmyndaríkur, útsjónarsamur og listrænn.“ Mynd/Arnar Már Hall Guðmundsson.
Aron Andri Hall Arnarsson „Mjög hugmyndaríkur, útsjónarsamur og listrænn.“ Mynd/Arnar Már Hall Guðmundsson.

Mynd: Copyright www.BrooksWalkerPhoto 2011. All rights reserved.

Vill halda minningu Arons á lofti

Arna Rós segir samtökin Birtu hafa veitt fjölskyldunni ómetanlegan stuðning í sorginni.

„Foreldrar mínir byrjuðu að mæta á mánaðarlega opna fundi hjá Birtu eftir síðustu áramót eftir að við fengum góða heimsókn og kynningu á samtökunum. Á fundunum hafa foreldrar mínir fundið mikinn og ómetanlegan stuðning og samhljóm meðal annarra foreldra í svipuðum sporum,“ segir hún og bætir við að hjá samtökum eins og Birtu, Nýrri dögun og fleirum mæti aðstandendur í sorg miklum skilning sem fáist ef til vill ekki annars staðar. Sá stuðningur sé nauðsynlegur þáttur í sorgarúrvinnslu syrgjenda.

Styðja við syrgjandi foreldra og aðstandendur

Þann 7. desember 2012, í Grafarvogskirkju, voru samtökin Birta stofnuð og stofnfélagar á annað hundrað manns.

Birta eru samtök ætluð fyrir foreldra og forráðamenn barna sem hafa látist skyndilega.

Tilgangur samtakanna og markmið er að standa fyrir fræðslu og ýmsum viðburðum á landsvísu, fyrir syrgjandi foreldra og fjölskyldur þeirra. Samtökin standa einnig fyrir árlegum hvíldardögum fyrir foreldra/forráðamenn með endurnærandi hvíld að leiðarljósi.

Hér má finna heimasíðu Birtu

Sem fyrr segir hyggst Arna Rós hlaupa 10 kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu næstkomandi laugardag til styrktar Birtu Landssamtökum. „Mér finnst mjög gott að geta hjálpað við að styðja við þessi samtök sem hafa reynst ómetanlegur stuðningur fyrir foreldra mína og foreldra margra annarra barna sem hafa látist skyndilega.

Ég er fyrst og fremst að hlaupa í minningu Arons Andra bróður míns og finnst svo góð tilhugsun að geta haldið nafni Arons á lofti og stutt við góð samtök eins og Birtu um leið,“ segir hún en hægt er heita á Örnu Rós á heimasíðu Hlaupastyrks.

„Ég er mjög þakklát fyrir öll áheit sem ég fæ og styrki sem nást svo að Birta geti áfram stutt við bakið á foreldrum sem missa börn sín skyndilega og fjölskyldur þeirra. Stuðningurinn gefur mér mikla hvatningu í hlaupinu til minningar um elsku bróður minn, Aron Andra.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Leyfðu Bandaríkin árásinni á Pearl Harbor að eiga sér stað?

Leyfðu Bandaríkin árásinni á Pearl Harbor að eiga sér stað?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hús Múmínálfana er risið í Kjarnaskógi

Hús Múmínálfana er risið í Kjarnaskógi
Fókus
Fyrir 6 dögum

Einstakur og fallegur Laufeyjar Múmínbolli fáanlegur

Einstakur og fallegur Laufeyjar Múmínbolli fáanlegur
Fókus
Fyrir 1 viku

Áhrifavaldur grét fyrir utan höfuðstöðvar TikTok – netverjar segja að þetta sé karma

Áhrifavaldur grét fyrir utan höfuðstöðvar TikTok – netverjar segja að þetta sé karma
Fókus
Fyrir 1 viku

Ragnhildur segir þetta þöglan skaðvald samtímans – Hversu mörg einkenni tengir þú við?

Ragnhildur segir þetta þöglan skaðvald samtímans – Hversu mörg einkenni tengir þú við?
Fókus
Fyrir 1 viku

Segja að þetta sé „náttúrulegt Ozempic“ – Fæst í næstu matvörubúð en passaðu þig á þessu

Segja að þetta sé „náttúrulegt Ozempic“ – Fæst í næstu matvörubúð en passaðu þig á þessu