fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Hræðilegur dauðdagi ungs manns – Móðir hans fagnaði því hún hafði þá afsökun fyrir að mæta ekki til vinnu

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 12. júní 2018 07:27

Jordan Burling. Mynd:Lögreglan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar sjúkraflutningamenn komu að hinum 18 ára Jordan Burling á heimili hans í Leeds á Englandi var hann nakinn nema hvað hann var með skítuga bleiu. Hann lá meðvitundarlaus á hryllilega skítugri vindsæng. Sjúkraflutningamenn reyndu að endurlífga hann en hann lést af völdum bráðrar lungnabólgu sem var tilkomin vegna sýkinga í sárum á líkama hans. Hann var aðeins 37 kíló þegar hann lést. Nú sitja móðir hans, Dawn Cranston 45 ára, systir hans, Abigail Burling 25 ára, og amma hans, Denise Cranston 70 ára, á sakamannabekk í Leeds þar sem réttað er yfir þeim en þær eru ákærðar fyrir morð.

BBC News skýrir frá þessu.

Fyrir rétti hefur komið fram að Dawn hafi „virst alveg sama“ á meðan sjúkraflutningamenn reyndu að lífga son hennar við. Hún sagði einnig við neyðarvörð að það væri „dásamlegt“ að hann vaknaði ekki því þá gæti hún sloppið við að mæta til vinnu.

Sjúkraflutningamenn hafa skýrt frá því fyrir rétti að hvorki móðir Jordan né amma hans hafi sýnt neinar tilfinningar þegar þeir komu á vettvang. Amman hafi setið og horft á sjónvarp en mamma hans hafi setið róleg í eldhúsinu.

Í upptöku af símtali til neyðarlínunnar, sem var spilað fyrir dóminn, heyrist Dawn segja:

„Ég neyðist til að tilkynna í vinnuna að ég komist ekki. Það er dásamlegt.“

Þegar lögreglan kom á vettvang og hóf rannsókn málsins fundu lögreglumenn lík lítils drengs í bakpoka í herberginu þar sem Jordan lést. Þetta var sonur Dawn. Réttarmeinafræðingum hefur ekki tekist að skera úr um hvort drengurinn hafi fæðst andvana eða lifandi.

Lögreglumenn komu fyrir dóminn fyrir helgi og sögðu að Dawn hefði spurt þá hvað útfarir kosta. Hún sagði þeim einnig að hún hefði ekki vitað að hún væri barnshafandi fyrr en hún eignaðist drenginn.

„Af ástæðum, sem við munum örugglega aldrei skilja, var Jordan skilinn eftir til að deyja, rotna í hel, af þeim sem stóðu honum næst.“

Sagði Nicholas Lumley, saksóknari, fyrir rétti. Hann sagði að Jordan hafi að mestu lifað eðlilegu lífi þar til hann varð 16 ára en þá var hann tekinn úr skóla til að móðir hans gæti kennt honum heima.

Fyrir rétti hefur komið fram að Jordan hafi glímt við þroskavandamál og hegðunarvanda allt frá því að hann var lítill. Í skýrslu frá leikskóla hans frá 2002 kemur fram hann hafi verið vanræktur hvað varðar grunnþarfir. Hann hafi ekki fengið þjálfun í að nota klósett og að tennur hans hafi verið svartar, málskilningur hafi verið lítill og sokkum hafi verið troðið fremst í skó hans því þeir hafi verið of stórir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Flugfélag hættir að fljúga til Bandaríkjanna vegna Trump

Flugfélag hættir að fljúga til Bandaríkjanna vegna Trump
Pressan
Í gær

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Í gær

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kona sökuð um að nema á brott þriggja ára stúlku sem hún sagði að væri týnd dóttir sín

Kona sökuð um að nema á brott þriggja ára stúlku sem hún sagði að væri týnd dóttir sín
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona velur hundurinn „uppáhaldsmanneskjuna“ sína

Svona velur hundurinn „uppáhaldsmanneskjuna“ sína
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hjartalæknir segir að það geti helmingað líkurnar á hjartasjúkdómum að gera þetta daglega

Hjartalæknir segir að það geti helmingað líkurnar á hjartasjúkdómum að gera þetta daglega
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni