fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Eyjan

Reykjavík mælist ein dýrasta gistináttaborg Evrópu – dýrust Norðurlanda

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 19. janúar 2017 19:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

hótelherbergi
Svo gott sem hvergi ku dýrara fyrir Norðmanninn að halla höfði sínu nú um stundir en í reykvísku hótelherbergi.

Ísland er byrjað að vekja athygli fyrir gríðarlegar verðhækkanir í ferðaþjónustu. Reykjavík sætir nú umtali sem ein dýrasta borg Evrópu og dýrasta borg Norðurlanda.

Norska dagblaðið Stavanger Aftenblad birtir í dag frétt þar sem greint er frá því að gisitnáttaverð í Reykjavík í janúarmánuði hafi hækkað um 122 prósent síðan 2014, mælt í norskum krónum.

Í janúar 2014 kostaði gistinóttin í höfuðborg Íslands að meðaltali 771 norska krónu (10.328 IKR á gengi dagsins í dag). Þá var meðalgistináttaverð í Ósló höfuðborg Noregs 1.218 norskar krónur. Tölur sem gistileitarvélafyrirtækið Trivago hefur tekið saman sýni að gistináttaverð í Ósló nú í janúar sé að meðaltali aðeins 66 norskum krónum hærra en það var í sama mánuði fyrir fjórum árum síðan.

Í Reykjavík hafi það hins vegar hækkað úr 771 norskri krónu upp í 1.710 krónur. Þetta er tæplega þúsund norskra króna hækkun á þessu árabili. Gistináttaverðið í janúar í Reykjavík hefur þannig rúmlega tvöfaldast á fjórum árum. Hækkunin er 122 prósent í norskum krónum.

Annette Vogt fjölmiðlafulltrúi hjá Trivago tjáir sig um þetta í samtali við Stavanger Aftenblad:

„Janúar er þó ekki einu sinni dýrasti mánuðurinn að ferðast til Reykjavíkur. Dýrast er að sumri til í júlímánuði en þá var meðalgistináttaverðið nú síðast 2.484 norskar krónur“

Það gera 33.275 íslenskar krónur á genginu í dag.

hotel
Tafla yfir þróun meðalverðs gistinátta á hótelum í höfuðborgum Norðurlanda og nokkrum helstu borgum Evrópu sem birt er með frétt Stavanger Aftenblad.

Stavanger Aftenblad birtir töflu með frétt sinni sem sýnir þróun gistináttaverðs í janúarmánuði í höfuðborgum Norðurlanda og nokkrum helstu borgum Evrópu frá 2014, mælt í norskum krónum. Þar kemur fram að Reykjavík trónir nú á toppnum.

Norðmenn telja einsýnt að mikil styrking á gengi íslensku krónunnar gagnvart þeirri norsku skýri að einhverju leyti þessar miklu verðhækkanir í norskum krónum talið. Rétt eftir efnahagshrunið þurfti 4 til 5 norskar krónur til að kaupa hundrað íslenskar. Nú er gengið um 7,5 NOK gegn 100 IKR. Mikil styrking hefur einnig átt sér stað gegn evrunni.

Þrátt fyrir þessar miklu hækkanir vilja norskar ferðaskrifstofur ekki kannast við að dregið hafi úr ferðagleði Norðmanna til Íslands:

„Okkar tölur sýna að gistináttaverð á reykvískum hótelum hækkaði um 24 prósent milli áranna 2015 og 2016. Þetta virðist ekki fæla norska ferðamenn frá. Við seldum fleiri ferðir til Íslands í fyrra en við gerðum 2015.“

Þetta segir Hanne Anniken Wæhler kynningarráðgjafi norsku ferðaskrifstofunnar Berg-Hansen við Stavanger Aftenblad.

Norska blaðið birtir einnig lista ferðahandbókafyrirtækisins Lonely Planet yfir tíu bestu löndin að ferðast til í heiminum á nýju ári 2017.

Þar er Ísland ekki nefnt einu orði.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Að lifa í skugga sjaldgæfs sjúkdóms

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Að lifa í skugga sjaldgæfs sjúkdóms
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Lottópeningarnir skipta sköpum

Willum Þór Þórsson: Lottópeningarnir skipta sköpum
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Mesti heiður sem mér hefur hlotnast er að verða heiðursfélagi í Val

Grímur Sæmundsen: Mesti heiður sem mér hefur hlotnast er að verða heiðursfélagi í Val
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna