fbpx
Laugardagur 21.mars 2026
Eyjan

Bein útsending frá Viðskiptaþingi 2017

Ari Brynjólfsson
Fimmtudaginn 9. febrúar 2017 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Viðskiptaþing 2017 fer fram á dag á Hilton Reykjavík Nordica frá kl. 13 til 17. Yfirskrift þingsins er Börn náttúrunnar: framtíð auðlindagreina á Íslandi.  Nú kl. 13:20 hefst ávarp Katrínar Olgu Jóhannesdóttur formanns Viðskiptaráðs og kl.15 hefst ávarp Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra. Bæði ávörpin verða sýnd hér í beinni útsendingu.

Aðalræðumaður er Wal van Lierop, framtaksfjárfestir sem leggur sérstaka áherslu á auðlindageirann. Hann býr yfir fjölbreyttri alþjóðlegri reynslu sem forstjóri, ráðgjafi og fræðimaður. Wal er einn stofnenda Chrysalix sem er kanadískur nýsköpunarsjóður á sviðum nýrra tæknilausna og auðlindanýtingar.

Örmyndbönd verða frumsýnd á þinginu þar sem valinkunnir fulltrúar auðlindageirans þræða áskoranir og tækifæri. Dagný Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Bláa lónsins, Gísli Hauksson, forstjóri GAMMA og Helgi Anton Eiríksson, forstjóri Iceland Seafood, munu svo halda örerindi um framtíð auðlindagreina á Íslandi.

Að lokum verða viðfangsefni þingsins rædd af Björtu Ólafsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Viðhorf gesta þingsins verða einnig nýtt inn í umræðurnar með gagnvirkum hætti. Í kjölfar erinda og pallborðs fer fram móttaka þar sem boðið verður upp á léttar veitingar.

Til að horfa á upptökur frá Viðskiptaþingi 2017 er lesendum bent á að smella á Play-takkann efst til hægri á myndbandinu:

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Þekking í stað tilfinninga

Björn Jón skrifar: Þekking í stað tilfinninga
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Andri Þór Guðmundsson: Stórkostlegt fyrir Ölgerðina að fara á markað – fengum 7000 fjölskyldur í hluthafahópinn

Andri Þór Guðmundsson: Stórkostlegt fyrir Ölgerðina að fara á markað – fengum 7000 fjölskyldur í hluthafahópinn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Andri Þór Guðmundsson: Íslendingar gera betur við sig en ferðamenn

Andri Þór Guðmundsson: Íslendingar gera betur við sig en ferðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkur áfram óstjórntækur – enn vandræðagangur – aðrir flokkar með öfluga lista

Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkur áfram óstjórntækur – enn vandræðagangur – aðrir flokkar með öfluga lista
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Kommóða formóður minnar úr Flatey

Nína Richter skrifar: Kommóða formóður minnar úr Flatey