Bæjarstórn Akraness og sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar leggjast mjög ákveðið gegn því að Alþingi samþykki frumvarp sem myndi heimila verslunum að selja áfengi frá og með næstu áramótum.
Þannig yrði Áfengis- og tóbaksverslun ríksisins lögð niður í núverandi mynd. Þessu frumvarpi er líka ætlað að „jafna“ stöðu innlendra og erlendra aðila varðandi auglýsingar á áfengi.
Flutt af þingmanni NV-kjördæmis
Teitur Björn Einarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi.
Frumvarp þessa efnis hefur áður verið lagt fyrir Alþingi en ekki hlotið afgreiðslu. Fyrsti flutningsmaður þess nú er Teitur Björn Einarsson. Hann er þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Norðvesturkjördæmi. Með honum sem flutningsmenn eru flokkssystkini hans þau Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Vilhjálmur Árnason og Hildur Sverrisdóttir, auk Pawel Bartoszek úr Viðreisn, Jóni Þór Ólafssyni, Ástu Guðrúnu Helgadóttur og Viktor Orra Valgarðssyni úr Pírötum og Nichole Leigh Mosty úr Bjartri framtíð.
Áfengisfrumvarpið svokallaða er umdeilt. Teitur Björn hefur nú mælt fyrir því í þinginu þann 23. febrúar. Það fór svo í gegnum fyrstu umræðu sem tók alls eina 12 tíma áður en frumvarpinu var vísað til allsherjar- og menntamálanefndar þingsins. Þar liggur frumvarpið nú til umfjöllunar um umsagna frá þeim sem kjósa að leggja orð í belg.
Hvalfirðingar allir á móti
Samkvæmt vef Alþingis þá hafa tvær sveitarstjórnir á útbreiðslusvæði blaðsins Vesturland sent inn umsagnir. Í báum tilfellum hafa umsagnirnar verið teknar til umfjöllunar í sveitarstjórnum og hlotið þar afgreiðslu. Þannig hljóðar umsögn Hvalfjarðarsveitar:
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að hvetja alþingsmenn til þess að hafna frumvarpi sem liggur fyrir Alþingi um breytingu á lögum um verslun með áfengi.
Frumvarpið fer beinlínis gegn þeim góða árangri sem náðst hefur á undanförnum árum í því að minnka neyslu unglinga á áfengi og öðrum vímuefnum og því markmiði stjórnvalda í áfengis- og vímuvörum að draga úr áfengisneyslu landsmanna.
Frumvarpið er því mikil afturför í forvarnar- og lýðheilsumálum hér á landi, en aukið aðgengi að áfengi stuðlar hvorki að bættri lýðheilsu né heilbrigði landsmanna.
Þessi umsögn var samþykkt samhjóða með 7 atkvæðum.
Þrjú sátu hjá á Skaganum
Bæjarstjórn Akraness tók svo til atvæðagreiðslu á fundi sínum 16. mars fram eftirfarandi tillögu að ályktun um áfengisfrumvarpið sem lögð var fram af bæjarfulltrúum Samfylkingar þeim Valgarði L. Jónssyni og Ingibjörgu Valdimarsdóttur:
Bæjarstjórn Akraness hvetur alþingismenn til þess að taka tillit til ábendinga landlæknis og heilbrigðisstarfsfólks þegar þeir gera upp hug sinn varðandi frumvarp það sem liggur fyrir Alþingi, um afnám einkaleyfis Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á smásölu áfengis og heimilar áfengisauglýsingar.
Bæjarstjórn Akraness er ekki alveg einhuga í ályktun sinni til umsagnar um áfengisfrumvarpið. Þrír fulltrúar Sjálfstæðisflokksins treystu sér ekki til að veita henni atkvæði.
Landlæknir, heilbrigðisstarfsfólk, samtök lækna og fjölmargir aðilar sem vinna að heilsueflingu og velferðarmálum vara við þeirri breytingu sem felst í samþykkt frumvarpsins og benda á að rannsóknir sýna að aukið aðgengi að áfengi, sem verður með mikilli fjölgun sölustaða, leiðir til aukinnar neyslu, meðal annars meðal barna og ungmenna. Kannanir sýna að meirihluti landsmanna er andvígur frumvarpinu.
Þessar ábendingar verður að taka alvarlega. Íslendingar hafa tekið forvarnir gegn ávana- og vímuefnaneyslu barna og ungmenna föstum tökum og náð þar undraverðum árangri. Bæjarstjórn Akraness leggur mikla áherslu á forvarnastarf og setur í forgang að búa börnum og ungmennum sem best uppvaxtarskilyrði. Á undanförnum árum hafa kannanir sýnt, að ávana- og vímuefnaneysla barna og ungmenna á Akranesi er með því allra minnsta sem þekkist hér á landi. Það er mikilvægt að við glutrum ekki niður þessum góða árangri.
Við eigum að láta hagsmuni og velferð barna og ungmenna njóta forgangs í allri stefnumörkun. Aukið aðgengi að áfengi og áróður í formi áfengisauglýsinga gengur gegn því sjónarmiði.
Tillagan var samþykkt af sex af níu bæjarfulltrúm Akraness. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins þau Ólafur Adolfsson, Sigríður Indriðadóttir og Rakel Óskarsdóttir sátu hjá.
Greinin birtist upphaflega í héraðsfréttablaðinu Vesturlandi.