fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Forsætisráðherra á leiðtogafundi í París – Kynnti kolefnislaust Ísland 2040

Trausti Salvar Kristjánsson
Þriðjudaginn 12. desember 2017 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tók þátt í leiðtoga-fundi í París í dag undir yfirskriftinni „One Planet Summit“.  Fundurinn var haldinn í tilefni af því að í dag, 12. desember, eru tvö ár liðin frá samþykkt Parísarsamkomulagsins og lýkur fundinum síðar í kvöld. Megintilgangur fundarins er að fagna þeim áfanga sem Parísarsamkomulagið er og vekja athygli á markmiðum þess og átaksverkefnum sem unnið er að undir merkjum þess. Einnig er hvatt til framkvæmdar á ákvæðum samkomulagsins og hertra skuldbindinga auk þess sem fjármögnun loftslagsverkefna er til umræðu á fundinum.

 

Í ávarpi sínu lagði forsætisráðherra meðal annars áherslu á metnaðarfull áform nýrrar ríkisstjórnar í umhverfis- og loftslagsmálum og nefndi þar sérstaklega markmið um kolefnishlutlaust Ísland árið 2040. Hún sagði að Ísland hefði þegar stigið fyrsta skrefið á þeirri vegferð með notkun endurnýjanlegrar orku til hitunar og rafmagnsframleiðslu. Næsta skref væri nýting grænnar orku í samgöngum og fiskveiðum. Þar væri stórt verkefni framundan en rafbílar væru að byrja að ryðja sér til rúms, sem vekti bjartsýni. Kolefnishlutleysi næðist ekki á skömmum tíma eingöngu með minnkun losunar; einnig þyrfti að binda kolefni úr andrúmslofti og vernda og endurheimta vistkerfi í því skyni.

Í tengslum við leiðtogafundinn tók Ísland undir tvær yfirlýsingar og var tilkynnt um það á fundinum. Annars vegar yfirlýsingu þar sem þátttakendur skuldbinda sig að því að vinna að kolefnishlutleysi (e. Towards Carbon Neutrality) og að gera langtímaáætlun um róttæka minnkun losunar. Hins vegar yfirlýsingu þar sem lýst er stuðningi við vinnu á vettvangi Alþjóðasiglingamálastofnuninnar (e. International  Maritime  Organization, IMO) þar sem unnið er að áætlun um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá skipum. Hvort tveggja er í samræmi við sáttmála ríkisstjórnarflokkanna.

Fyrr í dag sótti forsætisráðherra móttöku og hádegisverð í Elysée höll í boði Emmanuel Macron forseta Frakklands.

Forseti Frakklands bauð til leiðtogafundarins, í samstarfi við framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna og forseta Alþjóðabankans og var hann sóttur af yfir 50 þjóðarleiðtogum. Fulltrúar frá um 130 ríkjum sóttu fundinn og skráðir þátttakendur voru um 4000, m.a. fulltrúar ríkisstjórna, sveitarfélaga, félagasamtaka, fyrirtækja, fjármálageirans og vísindasamfélagsins.

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins