fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Eyjan

Kristján Þór gerir hreint fyrir sínum dyrum varðandi Samherjatengsl

Trausti Salvar Kristjánsson
Þriðjudaginn 12. desember 2017 11:37

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra. Mynd/DV

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Kristján Þór Júlíusson, birti á Facebook síðu sinni í morgun yfirlýsingu, þar sem hann gerir grein fyrir tengslum sínum við Þorstein Má Baldvinsson, forstjóra Samherja sem og tengsl hans við fyrirtækið, en hann hefur legið undir ámæli vegna þessa, sökum stöðu sinnar og embættis. Flest, ef ekki allt það sem Kristján týnir til, hefur þó áður komið fram í fréttum.

 

 

 

Kristján viðurkennir að hann hafi þekkt Þorstein Má síðan hann var ungur maður, sem og að Samherji hafi styrkt framboð hans til Alþingis tvívegis. Varðandi hæfi hans til að sinna málum er snerta Samherja segir Kristján Þór:

„Ég tel mig vera hæfan til þess að taka ákvarðanir um málefni sem snerta sjávarútveginn á Íslandi í heild sinni. Komi upp mál sem snerta Samherja sérstaklega mun ég að sjálfsögðu meta hæfi mitt í ljósi framangreinds líkt og allir stjórnmálamenn þurfa að gera þegar fjölskyldu-, vina- og kunningjatengsl gætu haft áhrif á afstöðu til einstakra mála.“

 

Yfirlýsingu Kristjáns má sjá hér að neðan:

 

Það var sérstaklega ánægjulegt að vera trúað fyrir embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra af þingflokki Sjálfstæðisflokksins að tillögu formanns flokksins. Ég þakklátur því trausti.

Ég er fæddur og uppalinn á Dalvík í Eyjafirði. Þar, eins og í flestum sjávarbyggðum landins, hefur útgerð og fiskvinnsla alla tíð verið samofin lífi íbúanna. Eftir að ég tók við embætti hef ég fengið fyrirspurnir um bakgrunn minn í sjávarútvegi.
Störf mín sem stýrimaður og skipstjóri, kennari við Stýrimannaskólann, ásamt öðrum störfum tengdum sjávarútvegi og sveitarstjórnarmálum tel ég að gefi mér einstaka og djúpa innsýn í þau verkefni sem fyrir höndum eru í ráðuneyti sjávarútvegsmála. Mér finnst því ekki úr vegi að birta hér nokkuð ýtarlegt yfirlit um fyrri störf á þessu sviði og öðrum, allt frá því að ég byrjaði 12 ára að reyna að hjálpa til við netavinnu og steypa sökkur í netagerðinni hjá pabba mínum, en sjómannsferillinn hófst þegar ég var 16 ára.

Háseti á togurum á sumrin 1973–1977
Stýrimaður og skipstjóri 1978–1981 og á sumrin 1981–1985
Kennari við Stýrimannaskólann á Dalvík 1981–1986

Hef setið í stjórnum eftirtalinna fyrirtækja sem tengdust sjávarútvegi:
Útgerðarfélag Dalvíkinga hf. 1987–1990
Söltunarfélag Dalvíkur hf. 1987–1993
Sæplast hf. 1988–1994
Togaraútgerð Ísafjarðar hf. 1996–1997
Samherji hf. 1996–2000

Flestir sem þekkja til starfsemi sveitarfélaga vita að á þeim vettvangi eru mikil samskipti og verkefni er tengjast atvinnulífi viðkomandi sveitarfélaga. Árin 1986–2007 starfaði ég á vettvangi sveitarstjórna landsins.
Á þessum árum öllum voru mér falin mikilvæg trúnaðarstörf þar sem tekist var á við margvísleg úrlausnarefni og þ.m.t. atvinnu og byggðamál. Hér vil ég sérstaklega nefna eftirfarandi:

Bæjarstjóri Dalvíkur 1986–1994
Bæjarstjóri Ísafjarðar 1994–1997
Bæjarstjóri Akureyrar 1998–2006
Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga 1998–2007
Formaður stjórnar Hafnasambands sveitarfélaga 1994–1997
Héraðsráð Eyjafjarðar 1990–1994
Formaður stjórnar Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar hf. 1987–1992
Formaður stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar 1998–2007
Stjórn Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands 1999–2008
Formaður stjórnar Lífeyrissjóðs Norðurlands 2000–2007
Formaður stjórnar Eyþings 1998–2002
Í stjórn Landsvirkjunar 1999–2007
Í Ferðamálaráði Íslands 1999–2003
Í stjórn Fasteignamats ríkisins 2000–2007

Það er óumflýjanlegt í smáu þjóðfélagi að stjórnmálamenn þekki marga, sérstaklega þegar viðkomandi hafa búið í sama bæjarfélagi eða unnið í sama geira. Þá skiptir mestu að allir sem veita stjórnmálamanninum umboð og aðhald, hvort sem um er að ræða kjósendur, aðra stjórnmálamenn eða fjölmiðla, séu meðvitaðir um tengslin og getið metið og gagnrýnt störf stjórnmálamannsins í því ljósi. Það er bæði nauðsynlegt og sjálfsagt í nútíma lýðræðissamfélagi.

Í því samhengi er mér ljúft og skylt að upplýsa að við Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, höfum þekkst síðan við vorum ungir menn. Fyrir um tuttugu árum (1996–2000) sat ég í stjórn Samherja, þar af sem stjórnarformaður í u.þ.b. eitt og hálft ár. Samtals 27 daga, í ágúst 2010 og júlí 2012, fór ég sem háseti á makrílveiðar. Einu launin sem ég hef þegið hjá fyrirtækinu eru fyrir áðurnefnda stjórnarsetu þar sem stjórnarlaun voru tæp 30 þúsund á mánuði og stjórnarformaður fékk tvöföld þau laun. Hásetahluturinn fyrir veiðitúrinn í ágúst 2010 var 1.374.929 kr og í júlí 2012 1.661.800 kr..
Fyrirtækið hefur síðan tvisvar styrkt framboð mitt í prófkjöri innan Sjálfstæðisflokksins, 500 þúsund kr. árið 2007 og 100 þúsund kr. árið 2013.

Ég tel mig vera hæfan til þess að taka ákvarðanir um málefni sem snerta sjávarútveginn á Íslandi í heild sinni. Komi upp mál sem snerta Samherja sérstaklega mun ég að sjálfsögðu meta hæfi mitt í ljósi framangreinds líkt og allir stjórnmálamenn þurfa að gera þegar fjölskyldu-, vina- og kunningjatengsl gætu haft áhrif á afstöðu til einstakra mála.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Nína Richter skrifar: Íslenska svefnleikhúsið

Nína Richter skrifar: Íslenska svefnleikhúsið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Háskólaprófessor: Andstæðingar aðildar hengja sig í algjör smáatriði – drepa innihaldsríkri umræðu á dreif

Háskólaprófessor: Andstæðingar aðildar hengja sig í algjör smáatriði – drepa innihaldsríkri umræðu á dreif
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Viðreisnarvor um allt land

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Viðreisnarvor um allt land
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Delluhugmyndir um kennslu

Björn Jón skrifar: Delluhugmyndir um kennslu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund Logadóttir: Meiri samvinnu, minni pólitík – þarf að vera skikk á hlutunum

Halla Hrund Logadóttir: Meiri samvinnu, minni pólitík – þarf að vera skikk á hlutunum