Thierry Henry fyrrum sóknarmaður Arsenal segist ekki hafa haft neitt með það að gera að Alexis Sanchez hafi yfirgefið félagið.
Sanchez gekk í raðir United frá Arsenal á mánudag. ,,Ég man eftir samtali sem ég átti við Henry, goðsögn hjá Arsenal. Hann ákvað að skipta um félag af sömu ástæðu og ég, nú er komið að mér,“ sagði Sanchez.
Líklega er Sanchez að vonast eftir því að vinna titla með United. ,,Ég veit að ég þarf ekki að útskýra þetta fyrir stærstum hluta af stuðningsmönnum Arsenal. Ég verð hisn vegar eftir þessar sögusagnir að segja að ég sagði Sanchez aldrei að fara frá Arsenal,“ sagði Henry.
,,Ég vissi ekki að hann væri að fara til Manchester United fyrr en ég sá það í fréttunum eins og þið.“
Nú hefur Sanchez lagt orð í belg. ,,Ég vil koma því á hreint að Henry sagði mér aldrei að fara frá félaginu, þetta var persónuleg ákvörðun. Hann elskar félagið og einn daginn væri gaman að sjá hann stýra Arsenal, hann elskar félagið,“ sagði Sanchez.
I want to clarify that Henry never told me to leave the club, it was a personal decision … he LOVES the club and someday it would be nice to see him as the arsenal coach because he loves the club …
— Alexis Sánchez (@Alexis_Sanchez) January 24, 2018