

Liverpool er í miklu stuði þessa dagana og liðið átti ekki í nokkrum vandræðum með Newcastle í kvöld.
Liðin mættust á Anfield en Rafa Benitez mætti þá með lærisveina á sinn gamla heimavöll.
Liverpool var sterkari á öllum sviðum fótboltans í kvöld og vann 2-0 sigur.
Mohamed Salah skoraði mark númer 32 á tímabilinu þegar hann kom Liverpool í 1-0 í fyrri hálfleik.
Sadio Mane skoraði svo í síðari hálfleik og tryggði Liverpool 2-0 sigur og annað sætið í deildinni
Salah hefur nú skorað eða lagt upp gegn 17 af 19 liðum deildarinnar á sínu fyrsta tímabili.
Mo Salah has now directly contributed to a goal against 17 of the 19 Premier League clubs he's faced this season. pic.twitter.com/q7ExgljvQf
— bet365 (@bet365) March 3, 2018