
People segir að lögreglumenn hafi verið sendir að heimili fjölskyldunnar í Tremonton í Utah þann 21. september. Tilkynnt hafði verið um lífvana barn.
Lögreglan fann lífvana dreng og voru lífgunartilraunir samstundis hafnar. Hann var síðan fluttur á sjúkrahús en var úrskurðaður látinn eftir komuna þangað.
Lögreglan tilkynnti nýlega að foreldrar drengsins hafi verið handteknir eftir að rannsókn hafði afhjúpað „mynstur stöðugs ofbeldis gagnvart látna drengnum og öðru barni á heimilinu“.
Þegar Brigham hringdi í neyðarlínuna sagðist hann hafa fundið son sinn hangandi í bílskúrnum og sagði að hann hefði hengt sig sjálfur.
Hann sagði lögreglumönnum síðan að hann hefði beitt hjartahnoði á drenginn. Þegar lögreglan kom á vettvang var Brigham við hlið drengsins en var ekki að beita hjartahnoði.
Á upptökum úr eftirlitsmyndavélum í húsinu sást Brigham flytja drenginn upp á efri hæðina og gekk hann þá fram hjá dyrunum sem viðbragðsaðilar stóðu við og bönkuðu á til að komast inn.
Í skýrslu lögreglunnar segir að drengurinn hafi verið með áverka á bakinu og hafi þeir ekki getað verið tilkomnir vegna hengingar og hafi líklega komið rétt áður en drengurinn lést eða um leið og hann lést.
Rannsókn lögreglunnar leiddi einnig í ljós að hjónin höfðu beitt börnin sín ofbeldi árum saman og hafi pyntað þau. Þeim var meðal annars neitað um mat, beitt líkamlegu ofbeldi og látin vera úti í hundagerðinu í refsingarskyni.