fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Stóð í röð til að vera einn af þeim 1.000 sem sváfu hjá Bonnie Blue – Segir frá hvað stoppaði hann

Pressan
Laugardaginn 6. júní 2026 21:30

Bonnie Blue.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvað gerir maður þegar maður stendur í röð til að taka þátt í stærsta hópkynlífi sögunnar en missir skyndilega áhugann? Einn af mönnunum, sem mætti til að taka þátt í heimsmetstilraun klámstjörnunnar Bonnie Blue, skýrði nýlega frá af hverju hann hætti við á síðustu stundu.

Bonnie Blue, sem heitir Tia Ballinger réttu nafni, hefur lengi verið á milli tannanna á fólki og ekki síst eftir að breska sjónvarpsstöðin Channel 4 sýndi heimildarmynd um hana en í henni reyndi hún að slá heimsmet með því að stunda kynlíf með 1.000 körlum á 12 klukkustundum.

Bonnie segist hafa náð 1.057 körlum á þessum 12 klukkustundum.

Ali Walker var einn þeirra sem mætti til að taka þátt í heimsmetstilrauninni. Hann ræddi við LadBible um þetta.

Hann er einhleypur, á fimmtugsaldri og sagðist upphaflega hafa haldið að um einkaatriði, bak við luktar dyr, yrði að ræða. En þegar hann mætti á staðinn mætti honum sjón sem minnti einna helst á áningarstað þar sem algjört stjórnleysi ríkti.

Hann viðurkenndi að vera svolítið feiminn og að þegar hann sá alla þessa karla, margir þeirra voru með lambhúshettu til að leyna hverjir þeir væru, hafi hann ákveðið að halda getnaðarlimnum í buxunum.

Ali, sem er 42 ára, sagðist hafa fundist hann einn af þeim elstu á staðnum. Hann sagðist hafa séð hóp ungra pilta, nánast á unglingsaldri, hópast um Bonnie. Þetta heillaði hann ekki og því hætti hann við og lagði ekki sitt af mörkum til að hjálpa Bonnie að ná því markmiði sem hún hafði sett sér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Í gær

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka
Pressan
Í gær

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman