fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Svefntilraun unglinganna hafði alvarlegar afleiðingar

Pressan
Laugardaginn 6. júní 2026 17:30

Svefntilrunin endaði illa.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flestir ef ekki allir hafa lent í því að sofa of lítið og þurfa síðan að takast á við verkefni hversdagsins. Hugsanirnar virðast seinar, þráðurinn í manni verður stuttur og líkaminn er ekki samstarfsfús.

En hvað gerist eiginlega þegar maður fer langt út fyrir mörk svefnskorts?

Samkvæmt því sem kemur fram í umfjöllun BBC, Unilad og NPR var þetta rannsakað í tilraun á sjöunda áratugnum. Hún er enn notuð sem kennslubókardæmi í svefnrannsóknum í dag.

Rannsóknin byrjaði sem skólaverkefni hjá ungum námsmönnum sem vildu rannsaka hversu lengi manneskja getur haldið sér vakandi. Einn þeirra tók að sér að gera tilraunina eftir að atkvæði voru greidd um hver skyldi gera það.

Þetta þróaðist hratt úr hugmynd yfir í rannsókn sem fagfólk fylgdist náið með því á þessu tíma var ekki vitað hversu hættulegt það er að sofa of lítið í langan tíma.

Áhyggjurnar voru réttmætar því vísindamenn höfðu ekki enn dregið upp mörkin á hvenær líkaminn gæti ekki lengur ráðið við svefnleysið.

Eftir nokkra daga byrjuðu greinileg einkenni að gera vart við sig. Samhæfingin varð léleg og einbeitingin minnkaði mjög mikið.

Einnig fór minnið að svíkja hann, skapsveiflur og pirringur sóttu á hann og hann skynjaði raunveruleikann ekki á réttan hátt.

Síðari rannsóknir sýndu að heilinn reyndi að takast á við svefnleysið með því að „slökkva“ í smá stund á meðan pilturinn var vakandi.

Rannsókninni lauk eftir rúmlega 11 sólarhringa. Líkami piltsins var fljótur að komast inn í eðlilegan ryþma á nýjan leik og ekki var að sjá að tilraunin hefði valdið varanlegu tjóni.

En mörgum árum síðar byrjuðu alvarleg svefnvandamál að herja á hann, þau höfðu áhrif á hversdagslíf hans og líðan.

Sérfræðingar telja að mikill svefnskortur geti haft langvarandi afleiðingar.

Heimsmetabók Guiness tekur met af þessu tagi ekki lengur með og er það gert með tilliti til öryggis fólks.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Viðvörun móður eftir að eins árs barn hlaut eitrun af algengri garðplöntu

Viðvörun móður eftir að eins árs barn hlaut eitrun af algengri garðplöntu
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vilja fangelsa meintan morðingja Madeleine McCann á ný

Vilja fangelsa meintan morðingja Madeleine McCann á ný
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hylltur sem hetja eftir hryðjuverkaárás – nú sakaður um árás á föður sinn

Hylltur sem hetja eftir hryðjuverkaárás – nú sakaður um árás á föður sinn
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lögreglumenn björguðu 11 andarungum meðan móðirin fylgdist óþolinmóð með – MYNDBAND

Lögreglumenn björguðu 11 andarungum meðan móðirin fylgdist óþolinmóð með – MYNDBAND
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ný rannsókn vekur áhyggjur: Veip tengist breytingum í þúsundum gena

Ný rannsókn vekur áhyggjur: Veip tengist breytingum í þúsundum gena