fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Ný veira gæti borist úr matnum í augu

Pressan
Laugardaginn 6. júní 2026 18:30

Sumar veirur eru stórhættulegar. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rannsókn hefur leitt í ljós að ákveðna veiru er að finna í að minnsta kosti 49 dýrategundum, þar á meðal kröbbum og skeldýrum. Hefur veiran fundist í Evrópu, Asíu, Afríku og Ameríku.

WP Tech skýrir frá þessu og segir að þetta þýði ekki að veiruna sé ekki að finna á fleiri stöðum. Vísindamenn rannsaka nú hvort hún geti borist í fólk.

Kínverskir læknar hafa árum saman séð mörg tilfelli af augnsjúkdómi einum sem veldur sýkingu og mjög háum þrýstingi í augum. Í alvarlegum tilfellum geta sjúklingarnir misst sjónina.

Erfitt hefur reynst að finna ástæðuna fyrir sjúkdómnum. Sjúklingar hafa ekki sýnt svörun við þekktum veirum sem valda venjulega augnsjúkdómum.

Í rannsókn, sem var birt í vísindaritinu Nature Microbiology, kemur fram að vísindamenn hafi fundið litlar agnir, sem líkjast veiru, í vef 70 sjúklinga. Þessar agnir fundust ekki hjá heilbrigðu fólki.

Aðrar rannsóknir sýndu að veiran er næstum eins og veira sem er í sjávardýrum. Tilraunir á frumum og dýrumsýndi að hún getur valdið sömu sjúkdómseinkennum og hjá sjúklingunum.

Samtöl við sjúklingana leiddu einnig í ljós að margir þeirra höfðu verið í snertingu við hráan fisk og skeldýr.

Vísindamenn telja því að það séu tengsl á milli veirunnar og augnsjúkdómsins.

Þetta er í fyrsta sinn sem veira úr vatni eða sjó er tengd við sjúkdóm hjá fólki. Engin meðhöndlun er til, enn sem komið er en það er hægt að lina einkennin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Viðvörun móður eftir að eins árs barn hlaut eitrun af algengri garðplöntu

Viðvörun móður eftir að eins árs barn hlaut eitrun af algengri garðplöntu
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vilja fangelsa meintan morðingja Madeleine McCann á ný

Vilja fangelsa meintan morðingja Madeleine McCann á ný
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hylltur sem hetja eftir hryðjuverkaárás – nú sakaður um árás á föður sinn

Hylltur sem hetja eftir hryðjuverkaárás – nú sakaður um árás á föður sinn
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lögreglumenn björguðu 11 andarungum meðan móðirin fylgdist óþolinmóð með – MYNDBAND

Lögreglumenn björguðu 11 andarungum meðan móðirin fylgdist óþolinmóð með – MYNDBAND
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ný rannsókn vekur áhyggjur: Veip tengist breytingum í þúsundum gena

Ný rannsókn vekur áhyggjur: Veip tengist breytingum í þúsundum gena