
Liverpool er samkvæmt helstu miðlum búið að tryggja sér hinn 17 ára gamla Samuel Martinez frá Atletico Nacional í Kólumbíu.
Samkomulag ku vera í höfn um kaupverð upp á um 750 þúsund pund og að Martinez muni skrifa undir fimm ára samning við enska félagið þegar hann verður 18 ára næsta vor.
Arsenal, Chelsea, Atletico Madrid, Bayern Munchen, Borussia Dortmund og Benfica voru einnig sögð fylgjast með miðjumanninum, en Liverpool virðist hafa unnið kapphlaupið um undirskrift hans.
Hann vakti mikla athygli á Suður-Ameríkumóti U-17 ára landsliða á dögunum, hvar Kólumbía hampaði titlinum.