fbpx
Föstudagur 22.maí 2026
433Sport

Móðirin stígur fram eftir fréttir gærdagsins – „Mér býður gjörsamlega við þessu“

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 22. maí 2026 08:30

Harry Maguire og móðir hans, Zoe.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Móðir Harry Maguire er vægast sagt sleginn yfir því að sonur hennar hafi verið skilinn eftir utan HM-hóps enska landsliðsins.

Þessi reynslumikli varnarmaður Manchester United verður ekki í 26 manna hópi Thomas Tuchel fyrir mótið í sumar og staðfesti hann það sjálfur á samfélagsmiðlum í gær.

„Ég var sannfærður um að ég gæti spilað stórt hlutverk fyrir þjóðina mína í sumar eftir tímabilið sem ég átti. Ég er hissa og miður mín yfir þessari ákvörðun,“ skrifaði Maguire.

Móðir hans, Zoe Maguire, brást harkalega við á samfélagsmiðum.

„Mér býður gjörsamlega við þessu. Þú gast ekki gert meira. Haltu höfðinu hátt. Þetta er skammarlegt,“ skrifaði hún.

Systkini Maguire gagnrýndu ákvörðunina einnig opinberlega.

Maguire hefur verið stór hluti af enska landsliðinu í tæpan áratug og hefur átt góðu gengi að fagna með United eftir áramót. Ákvörðunin kemur því mörgum á óvart.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Vill ganga í raðir United – Hafa sett verðmiða á hann

Vill ganga í raðir United – Hafa sett verðmiða á hann
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Myndband úr Garðabæ í mikilli dreifingu og foreldrar í bænum sagðir öskuillir – „Þetta er bara viðbjóður“

Myndband úr Garðabæ í mikilli dreifingu og foreldrar í bænum sagðir öskuillir – „Þetta er bara viðbjóður“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Áhugaverður landsliðshópur Þýskalands – Fertugur snýr hann aftur og stór nöfn fá ekki kallið

Áhugaverður landsliðshópur Þýskalands – Fertugur snýr hann aftur og stór nöfn fá ekki kallið
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Fleiri stór nöfn ekki í hópi Tuchel

Fleiri stór nöfn ekki í hópi Tuchel
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Herða tökin gegn þeim sem nota ólöglega sjónvarpsþjónustu – Gríðarleg aukning á síðustu árum

Herða tökin gegn þeim sem nota ólöglega sjónvarpsþjónustu – Gríðarleg aukning á síðustu árum
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Áhugaverður landsliðshópur fyrir mikilvæga leiki – Sveindís Jane í hóp þrátt fyrir meiðsli

Áhugaverður landsliðshópur fyrir mikilvæga leiki – Sveindís Jane í hóp þrátt fyrir meiðsli