

Björn Þorfinnsson, fjölmiðlamaður, skákmeistari og Arsenal-maður, og Tómas Steindórsson, útvarpsstjarna og körfuboltasérfræðingur, mættu til Helga Fannars í Íþróttavikuna.
Það er að sjálfsögðu rætt um hina nýkrýndu Englandsmeistara, Arsenal. Félagið og stuðningsmenn hafa beðið í 22 ár frá síðasta titli og því hefur eðlilega verið fagnað dátt víða um heim.
Lokaumferðin sem framundan er í ensku úrvalsdeildinni er sömuleiðis skoðuð og þá fær körfuboltinn gott pláss. Grindvíkingar hömpuðu Íslandsmeistaratitlinum á dögunum.
Þetta, Besta deildin og alls konar fréttir úr liðinni viku. Horfðu á þáttinn í spilaranum hér ofar, eða hlustaðu hér neðar, sem og á helstu hlaðvarpsveitum.
Íþróttavikan er í boði Lengjunnar!