fbpx
Föstudagur 22.maí 2026
433Sport

Þorsteinn léttur á fundi í Laugardal – „Hvar á ég að byrja?“

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 22. maí 2026 07:30

Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari. Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hvar á ég að byrja?“ svaraði Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari og hló, spurður út í muninn á komandi andstæðingum Íslands, Úkraínu og Spáni.

Ísland mætir Úkraínu 5. júní og Spáni 9. júní í undankeppni HM. Ísland vann fyrri leikinn gegn Úkraínu en tapaði gegn heimsmeisturum Spánar.

„Spánn spilar sinn fótbolta og það er sama hvaða landslið þú horfir á hjá Spáni, kvennaliðið, eða karlaliðið, A-liðið eða unglingalið, þau spila öll eins í grunninn. Possession, tækni, hraði og vilja stjórna leikjum. Þau eru góð á bolta og líður vel með hann.

Úkraína er transition-lið. Þær verjast vel og eru skipulagðar og sækja endalaust í skyndisóknum. Fyrsta hugsun þegar þær vinna boltann er að sækja fram á við, sem er ekki endilega með Spán. Í stórum dráttum myndi ég lýsa þessu svona,“ sagði Þorsteinn á fréttamannafundi í Laugardal í gær um muninn á liðunum.

Leikirnir framundan eru afar mikilvægir, sér í lagi leikurinn gegn Úkraínu ytra. Með því að forðast tap þar tryggja Stelpurnar okkar sér þriðja sæti riðilsins og þar af leiðandi mun sterkari stöðu þegar kemur að umspili um sæti á HM á næsta ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Færir aðdáendum góð tíðindi fyrir leikinn við Arsenal

Færir aðdáendum góð tíðindi fyrir leikinn við Arsenal
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Arteta lýsir því hvernig hann komst að því að Arsenal væri meistari – „Hljóp út til mín grátandi“

Arteta lýsir því hvernig hann komst að því að Arsenal væri meistari – „Hljóp út til mín grátandi“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Áhugaverður landsliðshópur Þýskalands – Fertugur snýr hann aftur og stór nöfn fá ekki kallið

Áhugaverður landsliðshópur Þýskalands – Fertugur snýr hann aftur og stór nöfn fá ekki kallið
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Gamli maðurinn gæti haldið áfram

Gamli maðurinn gæti haldið áfram
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Bayern skoðar óvæntan kost – Enskur landsliðsmaður sem getur komið frítt í sumar

Bayern skoðar óvæntan kost – Enskur landsliðsmaður sem getur komið frítt í sumar
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Casemiro sagður hafa náð samningi við nýtt félag

Casemiro sagður hafa náð samningi við nýtt félag
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Fær dóm eftir ofsaakstur og að valda líkamstjóni

Fær dóm eftir ofsaakstur og að valda líkamstjóni