fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
433Sport

Stefáni brugðið og segir taktleysið algjört – „Hata allt sem gott er og skemmtilegt“

433
Þriðjudaginn 19. maí 2026 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og eftir alla leiki sinna manna í Fram skrifaði Stefán Pálsson, sagnfræðingur með meiru, stórskemmtilegan pistil eftir jafntefli karlaliðsins við KR á dögunum, sem birtist á heimasíðu félagsins. Þar skaut hann aðeins á Vesturbæinga.

Lýsir Stefán því nefnilega í pistlinum hvernig Framaranum Kristjáni Frey hafi verið meinað að tromma á vellinum. „Trommur eru bannaðar á KR-vellinum! Hvers vegna? Jú, vegna þess að Vesturbæingar hata allt sem gott er og skemmtilegt. Taktleysið er algjört í eiginlegri og óeiginlegri merkingu,“ skrifaði Stefán.

Leiknum lauk með dramatísku 2-2 jafntefli, þar sem Fram komst yfir og jafnaði aftur á lokamínútunum.

„Á heimleiðinni skutlaði Rabbi fréttaritaranum og Hnífsdalstrymblinum heim og fræddist um drakónísk bönn Vesturbæinga við slagverksleik. Mennirnir sem hata ryþma og gleði fengu makleg málagjöld,“ skrifaði Stefán enn fremur.

Þess má geta að trommur hafa verið bannaðar á Meistaravöllum um nokkurt skeið. Ekki er vitað um að þær séu bannaðar á fleiri stöðum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Pep Guardiola sagður brjálaður yfir lekanum í gærkvöldi

Pep Guardiola sagður brjálaður yfir lekanum í gærkvöldi
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Nefnir nokkrar ástæður þess af hverju hann hatar að fara í bíó

Nefnir nokkrar ástæður þess af hverju hann hatar að fara í bíó
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Sesko fær langa hvíld og búist við að Carrick geri miklar breytingar

Sesko fær langa hvíld og búist við að Carrick geri miklar breytingar
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Flytja með sér mikið magn af búnaði til Bandaríkjanna – Á að hjálpa þeim að sofa betur

Flytja með sér mikið magn af búnaði til Bandaríkjanna – Á að hjálpa þeim að sofa betur