

Stórfréttir berast nú úr herbúðum Manchester City þar sem Pep Guardiola hefur ákveðið að yfirgefa félagið eftir tímabilið 2025/26.
Oliver Holt ritstjóri Daily Mail heldur þessu fram. Guardiola hefur stýrt City til sigurs í enska bikarnum og enska deildarbikarnum á þessu tímabili og getur enn orðið enskur meistari.
Guardiola hefur stýrt City frá árinu 2016 og á þeim tíma umbreytt liðinu í eitt það besta í heimi. Undir hans stjórn hefur félagið unnið fjölda titla, þar á meðal ensku úrvalsdeildina og Meistaradeild Evrópu.
Óvissa hefur verið uppi um framtíð hans undanfarið og þessar fréttir staðfesta að breytingar eru fram undan hjá City.
Ekki hefur verið tilkynnt hver taki við af Guardiola, en ljóst er að erfitt verður að fylla hans skarð eftir einn sigursælasta kafla í sögu félagsins. Enzo Maresca er mest orðaður við starfið.