

Erlendum ferðamönnum hefur fjölgað mjög hratt á undanförnum árum. Árið 2025 voru þeir rúmlega 2,2 milljónir talsins. Eins og gefur að skilja hefur þessi ofsavöxtur ferðaþjónustunnar valdið ýmsum vaxtaverkjum hér á landi. Til dæmis hvað varðar verðlag, samgöngur og átroðning.
En samskipti ferðamanna við Íslendinga og hegðun þeirra hefur ekki alltaf verið eins og best verður á kosið. Á samfélagsmiðlinum Reddit er umræða um þetta þar sem erlendur ferðamaður spurði hverju erlendir ferðamenn gætu breytt í hegðun sinni til þess að minnka líkurnar á árekstrum við heimamenn. Þetta eru helstu svörin
Borið hefur á því að ferðamenn stoppi bílaleigubíla sína á miðjum vegum, jafn vel við blindhæðir, til þess að taka ljósmyndir og myndbönd. Oft gerist það að þeir fara úr bílunum og skilja þá eftir mannlausa á miðjum vegi.
Þetta er atriði sem hefur oft verið nefnt, einkum í tengslum við bandaríska ferðamenn, sem eru fjölmennasti hópurinn. Bandaríkjamenn eiga oft erfiðara með nekt en Evrópumenn og því sleppa margir þeirra því að sturta sig fyrir sundlaugaferðir og fara skítugir út í laugina.
Ekki hefur tíðkast að gefa þjórfé á Íslandi og margir heimamenn eru mikið á móti því. Bæði vegna þess að það heldur launum lágum í ferðaþjónustunni og setur þrýsting á heimamenn að borga þjórfé líka. Þar að auki er yfirleitt ekki greiddur skattur af þjórfé og því er að mestu leyti um svarta atvinnustarfsemi að ræða.
Trump er óvinsæll á Íslandi rétt eins og í flestum löndum Evrópu. Einkum vegna dónalegra ummæla hans um Evrópumenn og hótanir í garð Dana og Grænlendinga. Borið hefur á því að bandarískir ferðamenn þykist vera frá Kanada til þess að styggja ekki heimamenn í löndum sem þeir heimsækja.
Þetta er atriði sem flestir myndu telja sjálfsagt en mýmörg dæmi eru um að ferðamenn gangi örna sinna annars staðar en á viðurkenndu salerni. Til að mynda á gangstéttir eða öðrum stöðum þar sem fólk á á hættu á að mæta ófögnuðinum. Annað hvort kúknum sjálfum eða skítugum klósettpappír sem fýkur hvert sem vindar blása. Flest dæmin um þetta sem ratað hafa í fjölmiðla tengjast kínverskum ferðamönnum.
Mörg dæmi hafa ratað í fjölmiðla um ferðamenn sem haga sér illa á vinsælum ferðamannastöðum. Til dæmis að þeir fylgi ekki reglum sem eru sýnilegar á upplýsingaskiltum, kasti rusli út um allt eða komi sér og öðrum í stórhættu til þess eins að ná góðri ljósmynd fyrir Instagram. Það er ekki í lagi að fleyta kellingum á Jökulsárlóni eða kasta sígarettustubb í Strokk.
Þetta á einkum við um bandaríska ferðamenn. Það er að í þeirri menningu er talað mikið og hátt. Hér á Íslandi er aftur á móti meiri hefð fyrir rólegheitum, fólk er almennt ekki að gaspra hátt ofan í næsta mann eða vera of nálægt því. Það finnst okkur pirrandi.