

Arne Slot segir að sér hafi aldrei dottið í hug að hætta sem knattspyrnustjóri Liverpool þrátt fyrir erfitt tímabil og mikla gagnrýni frá stuðningsmönnum félagsins.
Liverpool hefur átt í erfiðleikum með að verja enska meistaratitilinn á þessu tímabili og stuðningsmenn á Anfield hafa ítrekað sýnt óánægju sína með frammistöðu liðsins. Slot hefur þó fulla trú á verkefninu og segir félagið vera á réttri leið.
„Ég hef alltaf viljað halda áfram og aldrei hugsað mér að hætta,“ sagði Hollendingurinn á blaðamannafundi fyrir leik Liverpool gegn Aston Villa.
Liverpool getur tryggt sér sæti í Meistaradeild Evrópu með sigri á Villa á föstudagskvöldið og Slot segir það mikilvægt markmið fyrir félagið eftir vonbrigðatímabil.
Hann viðurkennir þó að það verði ný reynsla fyrir sig að enda tímabil án titils.
„Það er í fyrsta skipti á ferlinum sem ég er ekki að berjast um bikar í lok tímabils,“ sagði Slot.
Þjálfarinn segir jafnframt að stærsti lærdómurinn á tímabilinu hafi verið að takast á við neikvæða umræðu og gagnrýni.
„Ég er 47 ára gamall og hef verið í atvinnumennsku síðan ég var 16 ára. Ég er vanur því að fólk hafi mismunandi skoðanir á mér,“ sagði hann.
Slot bætti við að hann telji sig hafa sýnt að hann geti höndlað pressuna sem fylgir því að stjórna félagi á borð við Liverpool.