

Bournemouth hefur staðfest að argentínski varnarmaðurinn Marcos Senesi muni yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út í sumar.
Senesi, sem er 29 ára gamall, kom til Bournemouth frá Feyenoord árið 2022 og hefur síðan verið lykilmaður í varnarlínu félagsins. Hann lék alls 126 leiki fyrir félagið á þeim tíma sem hann var á suðurströnd Englands.
Undanfarna mánuði hafði verið búist við brottför hans eftir að hann hafnaði nokkrum tilboðum um nýjan samning. Fjöldi stórliða hefur verið orðaður við varnarmanninn, þar á meðal Liverpool, Manchester United, Chelsea og Tottenham.
Bournemouth staðfesti tíðindin í yfirlýsingu á föstudag þar sem félagið þakkaði Senesi fyrir framlag sitt síðustu ár.
„Eftir fjögur frábær tímabil á suðurströndinni getum við staðfest að Marcos Senesi muni yfirgefa félagið í lok tímabilsins,“ sagði meðal annars í tilkynningu félagsins.
Bournemouth hyggst heiðra Senesi sérstaklega eftir síðasta heimaleik tímabilsins gegn Manchester City.