fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
433Sport

Dæmdur fyrir kynþáttaníð – Spurði hann hvort hann væri ósáttur með að fá ekki karrý-pítsu

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 13. maí 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dómstóll í London hefur komist að þeirri niðurstöðu að fyrrum knattspyrnustjórinn John Yems hafi gerst sekur um kynþáttaníð gagnvart leikmanninum Amrit Bansal-McNulty meðan hann lék á láni hjá Crawley Town.

Bansal-McNulty, sem á indverskar rætur, höfðaði mál gegn Crawley Town, QPR og Yems sjálfum eftir að hafa orðið fyrir kynþáttafordómum á meðan hann var hjá félaginu árið 2022. Málið hefur verið tekið fyrir hjá atvinnuréttardómstóli í London í alls 30 daga.

Dómurinn staðfesti þrjár ásakanir um kynþáttaníð gegn Yems. Þar á meðal var atvik þar sem Yems kallaði leikmanninn meðal annars „curry muncher“ og spurði hvort hann væri ósáttur við að pítsur frá styrktaraðila hefðu ekki innihaldið „karrý-pítsu“.

Yems hélt því fram að um „grín“ hefði verið að ræða, en dómurinn hafnaði þeirri skýringu. Crawley Town var talið bera ábyrgð á hegðun stjórans þar sem hún átti sér stað í starfi hans hjá félaginu.

Kröfum leikmannsins gegn QPR var hins vegar vísað frá.

Bansal-McNulty fer fram á um 12 milljóna punda skaðabætur og segir meðferðina hafa valdið sér alvarlegum andlegum skaða og eyðilagt knattspyrnuferil sinn.

Yems fékk áður þriggja ára bann frá enska knattspyrnusambandinu vegna mismunandi kynþáttafordóma og var það lengsta bann sinnar tegundar í sögu enskrar knattspyrnu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Arnar Gunnlaugs útskýrir valið á Ögmundi – Aron Sig var ekki í huga Arnars fyrir leikinn gegn Argentínu

Arnar Gunnlaugs útskýrir valið á Ögmundi – Aron Sig var ekki í huga Arnars fyrir leikinn gegn Argentínu
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Þetta er fyrsti maðurinn sem Mourinho vill kaupa til Real Madrid

Þetta er fyrsti maðurinn sem Mourinho vill kaupa til Real Madrid
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Myndband: Rauk út af blaðamannafundi eftir sigur í gær – „Ertu svindlari?“

Myndband: Rauk út af blaðamannafundi eftir sigur í gær – „Ertu svindlari?“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Birta samskipti dómara og VAR-herbergisins frá atvikinu í London um helgina – Hlustaðu á það sem gekk á

Birta samskipti dómara og VAR-herbergisins frá atvikinu í London um helgina – Hlustaðu á það sem gekk á