

Rio Ferdinand telur að Manchester United eigi að reyna af fullum krafti að fá Aurélien Tchouaméni frá Real Madrid í sumar. Fyrrum varnarmaður United segir franska miðjumanninn vera nákvæmlega þá tegund leikmanns sem félagið þurfi á að halda.
Undanfarið hafa verið miklar vangaveltur um ólgu innan herbúða Real Madrid. Samkvæmt spænskum miðlum hafa komið upp átök á æfingasvæðinu milli Tchouaméni og Federico Valverde, auk þess sem Antonio Rüdiger á að hafa lent í samstuði við Álvaro Carreras. Þá hefur einnig verið greint frá rifrildi milli Kylian Mbappé og starfsmanns í þjálfarateymi félagsins.
Á sama tíma varð Real Madrid að horfa upp á Barcelona tryggja sér spænska meistaratitilinn eftir sigur í El Clásico um síðustu helgi.
Ferdinand telur að Manchester United eigi að nýta sér ástandið hjá spænska stórveldinu og reyna að lokka Tchouaméni á Old Trafford.
„Ef það er einhver óstöðugleiki hjá Real Madrid og staða hans þar er ekki alveg örugg þá eigum við að slá til,“ sagði Ferdinand á YouTube-rás sinni.
Hann sagði jafnframt að slagsmál eða harka á æfingum hefðu engin neikvæð áhrif á sitt mat á leikmanninum.
„Ég vil leikmenn með baráttuanda og ákveðni. Tchouaméni getur bæði stjórnað leikjum og verið harður í návígum. Hann væri frábær kaup fyrir Manchester United,“ sagði Ferdinand.
United hefur verið sterklega orðað við miðjumanninn síðustu vikur.