fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fréttir

Sverrir Davíð og Fríða Björk gengu hraðast

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 12. maí 2026 17:52

Frá upphafi göngunnar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Metþátttaka var í götugöngu Virkni og vellíðan sem haldin var í fjórða sinn í dag, þriðjudaginn 12.maí. Hröðustu göngugarparnir voru þau Fríða Björk Gunnarsdóttir og Sverrir Davíð Hauksson en þau unnu einnig aldursflokkaverðlaun 70-80 ára.

Tæplega 400 tóku þátt og var í fyrsta sinn boðið upp á tvær vegalengdir, 1,5 km og 3,4 km hring. Genginn var hringur sem hófst og lauk á Kópavogsvelli og ríkti mikil stemning og gleði í Kópavogsdalnum á meðan viðburðinum stóð og eftir göngu.

Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ ávarpaði þátttakendur og talaði um mikilvægi hreyfingar og að loknu ávarpi ræsti Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri, gönguna. Afrekshlauparinn Arnar Pétursson var sérstakur gestur í ár og fylgdi fremstu göngugörpum.

Verðlaun voru veitt í þremur aldursflokkum í 3,4 kílómetra göngu, 60-70 ára, 70-80 og eldri en 80 ára. Þá var elsti keppandi göngunnar heiðraður, Sigríður Ingimundardóttir, en hún er 88 ára gömul og gekk 1,5 kílómetra. Einnig voru veitt útdráttarverðlaun.

Sigurvegarar í aldursflokkum.

Að göngunni lokinni var boðið upp á veitingar, Hleðslu og Næringu+ frá Mjólkursamsölunni, Öryggismiðstöðin bauð upp á kleinur og sódavatn og loks buðu Númer eitt upp á sölt, steinefni meðan á göngu stóð og magnesíum að lokinni göngu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt