

Liverpool hefur samkvæmt frönskum miðlum áhuga á tveimur leikmönnum Mónakó fyrir sumargluggann. Þar er helst nefndur kantmaðurinn Maghnes Akliouche sem hefur vakið mikla athygli í frönsku deildinni á þessu tímabili.
Akliouche er 24 ára gamall og hefur verið einn af lykilmönnum Mónakó. Talið er að félagið meti franska landsliðsmanninn á um 50 milljónir evra, eða tæplega 43 milljónir punda. Liverpool er sagt fylgjast grannt með þróun hans þar sem félagið vill styrkja kantstöðurnar fyrir næsta tímabil.
Þá hefur Liverpool einnig áhuga á liðsfélaga hans, senegalska miðjumanninum Lamine Camara. Sá er 22 ára gamall og hefur einnig átt sterkt tímabil með Mónakó.
Liverpool gæti þó þurft að hafa hraðar hendur í viðræðum um Camara þar sem Newcastle er einnig sagt fylgjast með stöðu hans.
Arne Slot og félagar vinna nú að því að styrkja hópinn fyrir næsta tímabil þar sem búist er við breytingum á leikmannahópnum í sumar.