fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fréttir

Allt á suðupunkti í Grímsnesinu: Segir Fjólu tala niður til fólks – „Talað um fólk eins og mig eins og við séum ekki „alvöru“ íbúar“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 12. maí 2026 12:30

Þóra er ekki sátt við Fjólu sveitarstjóra.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það má segja að hvergi á landinu sé kosningabaráttan jafn hörð og hatrömm og í hinum litla Grímsnes- og Grafningshreppi í uppsveitum Árnessýslu. Sveitarstjóri segir ekki siðferðilega rétt að fólk skrái sig til lögheimilis í hreppnum fyrir kosningar en stuðningsmaður mótframboðs segir hana tala niður til íbúanna.

Íbúafjöldi Grímsnes- og Grafningshrepps er ekki nema um 650 en þar er hin pólitíska barátta mjög hatrömm fyrir kosningarnar á laugardag. Í hreppnum er eitt stærsta sumarhúsahverfi landsins.

Fjölgun ótilgreindra

Tveir listar eru í boði. Annars vegar A-listi- framboðslisti um öflugt samfélag í vaxandi samfélagi og hins vegar Ö-listi – Betri sveit fyrir okkur öll, en seinna framboðið er dyggilega stutt af eigendum sumarhúsa sem finnst þjónusta sveitarfélagsins ekki nógu góð.

Í janúar í fyrra var Fjóla St. Kristinsdóttir ráðin sveitarstjóri í hreppnum, en hún var áður bæjarstjóri Árborgar fyrir Sjálfstæðisflokkinn, en klauf sig frá meirihlutanum þegar bæjarstjóratíð hennar lauk. Fjóla er sveitarstjóraefni A-listans.

Ekki er heimilt að skrá lögheimili í sumarhúsi en leyfilegt er að skrá lögheimili með ótilgreint heimilisfang í sveitarfélögum. Eins og segir í frétt Vísis í gær hefur einstaklingum með ótilgreint lögheimili fjölgað úr 26 í 132 frá síðustu kosningum en alls eru 579 ár kjörskrá í hreppnum.

Þung orð sveitarstjóra

Sagði Fjóla að eigendur sumarhúsa væru að skrá sig í ótilgreint til þess að geta kosið á laugardag. Margir myndu svo skrá sig annars staðar að þeim loknum. Sagði hún þetta grafalvarlegt mál, því að íbúarnir væru ekki margir. „Nei, mér finnst það ekki siðferðislega rétt. Ég harma að það sé staðan,“ var haft eftir Fjólu.

Grímsnes- og Grafningshreppur er ekki fjölmennur en hitinn í stjórnmálunum er mikill þar. Mynd/Wikipedia

Andrés Bertelsen, oddviti Ö-listans, benti hins vegar á að Fjóla væri sjálf skráð í Árborg og væri með pólitískum hætti að gagnrýna framboðið. Þannig myndu leiðtogar ekki haga sér.

Gekk í kvenfélagið og greiði útsvar

Þá skrifaði, Þóra Gunnarsdóttir, stuðningsmaður Ö-listans grein í staðarmiðilinn DFS þar sem hún gagnrýndi Fjólu harðlega og sakaði hana um að tala niður til íbúa.

Segir Þóra það óásættanlegt að sveitarstjóri tali um íbúa eins og þeir séu einhvers konar utanaðkomandi þrýstihópur eða jafn vel afætur í samfélaginu.

„Ég flutti hingað af því að ég elskaði samfélagið og umhverfið. Ég byggði hér hús, skráði hér lögheimili, gekk í kvenfélagið, á viðskipti við verktaka úr sveitinni, fer í sund og ræktina á Borg, heimsæki Sólheima, versla blóm á Ártanga og tek þátt í samfélaginu eins og aðrir íbúar. Ég greiði hér skatta eins og aðrir og legg mitt af mörkum til samfélagsins,“ segir Þóra í greininni. „Samt er talað um fólk eins og mig eins og við séum ekki „alvöru“ íbúar heldur einhvers konar vandamál sem hafi verið smalað inn í sveitarfélagið í pólitískum tilgangi. Það er bæði niðrandi og ósanngjarnt.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Keyrði á móti rauðu ljósi á Suðurlandsbraut með hryllilegum afleiðingum – Bilaður ljósastaur ekki lagfærður strax eftir slysið

Keyrði á móti rauðu ljósi á Suðurlandsbraut með hryllilegum afleiðingum – Bilaður ljósastaur ekki lagfærður strax eftir slysið
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

„Ofbeldismyndbandi“ Guðmundar Inga eytt í kjölfar gagnrýni og frétta fjölmiðla – „Þetta er verulegur dómgreindarbrestur“

„Ofbeldismyndbandi“ Guðmundar Inga eytt í kjölfar gagnrýni og frétta fjölmiðla – „Þetta er verulegur dómgreindarbrestur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vilja byggja Fossvogsbrú á nóttunni – Lýst yfir áhyggjum af áhrifunum á heilsu íbúa

Vilja byggja Fossvogsbrú á nóttunni – Lýst yfir áhyggjum af áhrifunum á heilsu íbúa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sonur Díönu var skilinn eftir í skólarútunni – Er með sjaldgæfan sjúkdóm sem getur verið hættulegur

Sonur Díönu var skilinn eftir í skólarútunni – Er með sjaldgæfan sjúkdóm sem getur verið hættulegur