fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fréttir

Ákæran yfir Skúla Tómasi: Sakaður um manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 12. maí 2026 10:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mál gegn lækninum Skúla Tómasi Gunnlaugssyni verður þingfest við Héraðsdóm Reykjaness þann 19. maí næstkomandi.

DV hefur ákæru héraðssaksóknara í málinu undir höndum og kemur þar fram að Skúli er ákærður fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn, en til vara fyrir manndráp af gáleysi og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn.

Skúli er sakaður um að hafa svip Dönu Jóhannsdóttur lífi er hún var lögð inn á D-deild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) í Reykjanesbæ, þann 1. ágúst árið 2019. Dana kom þangað til hvíldarinnlaganar  en Skúli, sem var yfirlæknir og bar læknisfræðilega ábyrgð á meðferð Dönu, setti hana á lífslokameðferð sama dag. Þetta gerði hann þrátt fyrir að Dana hafi ekki verið með lífsógnandi sjúkdóm.

Samkvæmt ákvörðun Skúla voru Dönu gefin slævandi lyf, morfín og morfínskyld lyf, Leponex og Dormicum. Samkvæmt ákæru leiddi þessi þunga lyfjameðferð til þess að Dana lést af völdum meðferðarinnar á sjúkrahúsinu laugardaginn 19. október árið 2019. Hún var þá 73 ára gömul.

Alls voru sex mál af sama tagi gegn Skúla, þ.e. mál er vörðuðu ótímabær andlát sjúklinga á HSS, til rannsóknar hjá lögreglu um árabil en niðurstaðan varð sú á endanum að fella niður rannsókn í fimm málum og ákæra í þessu eina máli.

Héraðssaksóknari krefst þess að Skúli verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Fimm aðstandendur hinnar látnu krefjast miskabóta frá honum.

Skúli missti um tíma lækningaleyfi sitt í kjölfar umsagnar Embættis landlæknis um framgöngu hans við meðferð Dönu. Hann endurheimti leyfið síðar og starfaði á Landspítalanum. Í kjölfar ákvörðunar um ákæru héraðssaksóknara gegn Skúla afþakkaði Landspítalinn frekara vinnuframlag frá Skúla.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Hvað var hinn 17 ára Tommy að gera á Íslandi? – Íris leitar aðstoðar Íslendinga vegna 60 ára gamals mannsláts

Hvað var hinn 17 ára Tommy að gera á Íslandi? – Íris leitar aðstoðar Íslendinga vegna 60 ára gamals mannsláts
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Ræstitækni ehf. dæmd til að greiða Andreinu miskabætur – Mörgum ásökunum hafnað

Ræstitækni ehf. dæmd til að greiða Andreinu miskabætur – Mörgum ásökunum hafnað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lofar Kristrúnu en getur ekki kosið Samfylkinguna í Reykjavík – „Stefna hans eyðilagt allt sem ég vildi að gert væri“

Lofar Kristrúnu en getur ekki kosið Samfylkinguna í Reykjavík – „Stefna hans eyðilagt allt sem ég vildi að gert væri“