
Virðulegi ráðherra,
Hanna Katrín Friðriksson.
Inngangur
Ég heiti Árni Stefán Árnason, er dýraverndarlögfræðingur og skrifaði ML ritgerðina Um réttaráhrif og framkvæmd dýraverndarlaga á Íslandi frá upphafi. Það var frumkvöðulsverkefni með leiðbeiningum virts hæstaréttarlögmanns í dag. Ritgerðin er opin öllum þeim sem lesa vilja á skemman.is
Mér hefur verið umhugað um dýravernd frá því ég var lítið barn og dýrahald hefur verið lífsstíll minn í marga áratugi, einkum hundahald tegundanna írsks og ensks seta. Ég hef á löngum tíma komið að björgun fjölmargra dýra, veitt þeim tímabundið eða framtíðarheimili. Að lokum þá er ég upphafsmaður blóðveramálsins á Íslandi og upphafsmaður Brúneggjamálsins.
Grafalvarleg staða opinberrar dýraverndar
Skrif þess eiga nokkurn og mjög vel ígrundaðan en alvarlegan aðdraganda. Þér eruð æðsti yfirmaður dýravelferðar á Íslandi og hafið eflaust lesið, jafnvel heyrt, gagnrýnisraddir um Matvælastofnun (Mast). Þær eru ekki uppspuni eins og lesa má um í skýrslu ríkisendurskoðanda til Alþingis útgefin í nóvember 2023.
Gagnrýnisraddirnar eru réttmætar og flestar vel rökstuddar. Mast hefur á undanförnum vikum og mánuðum vegið gróflega að réttindum dýra og eigendum þeirra skv. lögum um velferð dýra, eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar og mörgum fleiri lögum. Margir hafa leyft sér að svara fyrir sig, með réttu. Aðrir óttast að svara Mast. Já þeir óttast að tjá sig í réttarríki hvar ríkir tjáningarfrelsi. Það er raunveruleg ógn.
Mikið einhliða fjölmiðlarými Mast
Á undanförnum dögum hafa forstjóri Mast og yfirdýralæknir fengið mikið rými í fjölmiðlum til að lýsa meintu ofbeldi frá, það sem þau kalla viðskiptavinum stofnunarinnar, í sinn garð og er þar verið að vísa í þolendur aðgerða Mast. Dýravinir fordæma ofbeldi á starfsmenn Mast en fordæma um leið ofbeldi Mast gegn mörgum þeirra.
Fréttaflutningurinn gefur ranga mynd og er til þess fallinn að blekkja æðri stjórnendur sem hafa með málaflokkinn að gera, þingið, jafnvel dómstóla, fjórða valdið og almenning. Þolendur hafa ekkert rými fengið utan einstaka frétta á dv.is um mig en ég er sjálfur þolandi sem virði í hvívetna fyrstu grein laga um velferð dýr sem hljóðar svo:
„Markmið laga þessara er að stuðla að velferð dýra, þ.e. að þau séu laus við vanlíðan, hungur og þorsta, ótta og þjáningu, sársauka, meiðsli og sjúkdóma, í ljósi þess að dýr eru skyni gæddar verur. Enn fremur er það markmið laganna að þau geti sýnt sitt eðlilega atferli eins og frekast er unnt.“
Annað en það sem kemur fram í ákvæðinu hefur aldrei verið sannað upp á mig af Mast né á skjólstæðinga mína sem hafa þurft að þola sömu örlög ógnarstjórnar Mast og ég. Samt brýtur stofnunin allt meðalhóf gagnvart mér og öðrum, stundar þjófnað á dýrum, hefur orðið uppvís að skjalfalsi við ólöglega umskráningu hunda í dyraauðkenni.is yfir á nafn stofnunarinnar. Þetta virðist fremur regla en undantekning.
Mast snérist gegn mér eftir birtingu skrifa minna á hinum virta miðli nutiminn.is – Hömlulaus valdníðsla og ofbeldi Mast. Áður hafði greinin birst sem skoðun á visir.is en var ritskoðuð og fjarlægð. SYN og RYV eru þeir miðlar sem sagt hafa einhliða frá um meint ofbeldi fólks gegn Mast, ofbeldi sem ég hef enga trú að sé raunveruleiki, heldur tilbúningur til að fanga samúð fjölmiðla og almennings því daga Mast má nú telja enda hafið þér ákveðið að leggja stofnunin niður frá og með næstu áramótum.
Vegna aðfarar Mast að mér en þó sérstaklega að viðkvæmum hundum mínum, sem Mast neitar mér að upplýsa um ástand á, hvar er haldið, við hvaða aðstæður og hvort þeir séu saman eins og þeir eru vanir, sá ég mér ekki annað fært en að kæra 8 lykilstarfsmenn Mast fyrir ýmis gróf brot af ásetningi gegn mér og hundum mínum á ýmsum ákvæðum setts réttar. Kærurnar hafa verið teknar til meðferðar af Ríkislögreglustjóra.
Sættir vonlausar
Ég hef reynt að ná sáttum við Mast til að fá dýr mín til baka og tryggja velferð þeirra því ekkert er að getu minni til að tryggja dýrum sínum besta mögulega atlæti. Ég hef lagt milljónir í það. Dýralæknir minn staðfestir fullkomið heilbrigði hunda minna. Um það fjallar tölvupóstur sem ég sendi yður í vikunni og er stílaður á Viktor S. Pálsson, yfirmann stjórnsýslu Mast og áframsent til yfirdýralæknis og forstjóra. Engin viðbrögð berast. Mast þráast við að leysa mál í þágu velferðar dýra.
20 óumdeilanleg og rökstyðjanleg lykilatriði um starfshætti Mast í trássi við lög og rétt.
Á meðal þess sem ég get talið upp og rökstutt um háttalag Mast undanfarin misseri er eftirfarandi.
vegna framangreinds og eru fleiri kærur á leiðinni. Vitnað er í um 20 lagaákvæði um meint brot á lögum.
13.Dýraeigendur þora ekki að gagnrýna MAST, eru hræddir við ógnartilburði Mast og hótanir um vörslusviptingu
14.Dýralæknar þora ekki að gagnrýna MAST eru hræddir við sömu ógnartilburði Mast.
starfsleyfis
17, Mast lætur hjá líða að koma dýrum til hjálpar sem í eigu rekstaraðila sbr. nýlegan þátt Kveiks um loðdýraeldi
20.Ofangreint eru staðreyndir sem fjölmiðlar virðast ei vilja heyra nér fjalla um utan dv.is
Rökin um svívirðilegt háttalag MAST gegn þolendum (viðskiptavinum) eru endalaus, algerlega endalaus – framkvæmdavaldið hlustar ei, þingið hlustar ei og fjórða valdið er tregt til að hlusta – Yfirdýralæknir segir í óstöðvandi yfirlæti, hroka og skilningsleysi við angistarfulla þolendur um afdrif dýra sinna: smyrjið ykkur þolinmæði
Þetta eru staðreyndir
Áskorun
Ég skora á yður, hæstvirtur ráðherra, að skoða framvindu kærumála okkar þolenda í ráðuneytinu. Upplýsingar um aðila þeirra mála get ég veit yður með því að þér hafið beint samband við mig. Ég er skráður á ja.is.
Ég legg þó ennþá meiri áherslu á að þér takið, helst strax, stjórnarhætti Mast til ítarlegrar skoðunar og setjið hemil á núverandi starfshættir Mast í dýravelferð. Svo virðist sem ekkert eftirlit sé með því og Mast fari sínu oft fram algerlega í trássi við lög og rétt.
Ef þér kærið yður um þá getið þér kynnt yður framvindu míns máls á facebook síðu minni https://www.facebook.com/profile.php?id=100090080053142
Niðurstaðan fyrir okkur hina vörslusviptu en einföld. Það er tilvitnun í heiti nýjustu bókar Gyrðis Elíassonar, þess mikla dýravinar: Ótíð í víti. Það skiptir Gyrði máli að það sé hlustað hann. Það skiptir mig líka máli. Þess vegna sendi ég yður þetta, þér eruð mín síðasta von, í vissri örvæntingu um afdrif dýra minna, á stjórnsýslustigi.
Ég þakka yður fyrir lesturinn