

Talsvert er rætt og ritað um framtíð Jökuls Elísabetarsonar sem þjálfari Stjörnunnar. Eftir fjögur töp í röð í Bestu deildinni hefur umræðan farið af stað.
Jökull kom Stjörnunni Í Evrópusæti í fyrra sem taldist góður árangur, eftir erfiða byrjun hefur umræðan um framtíð hans farið af stað.
Halldór Árnason fyrrum þjálfari Breiðabliks hefur verið nefndur til sögunnar sem mögulegur arftaki en Hjörvar Hafliðason telur það ólíklegt eftir að hafa rætt við stuðningsmenn Stjörnunnar.
„Ég spurði Garðbæinga hvort Dóri Árna tæki ekki bara við þessu, þeir frussuðu úr hlátri út af einhverju. Hann var látinn fara á sínum tíma úr yngri flokkum þeirra,“ sagði Hjörvar í nýjasta þætti Dr. Football hlaðvarpsins.
Hjörvar segir eitthvað hafa gerst þegar Halldór starfaði með yngri flokka Stjörnunnar á árum áður. „Hann á einhverja sögu með Stjörnunni sem virðist ekki hægt að fara til baka, það kom eitthvað uppá og hann var hættur skömmu síðar. Ég veit ekki nákvæmlega hvernig þetta var, þeir Garðbæingar sem ég talaði við grýttu þessu af borðinu.“
Hjörvar vonar að Jökull snúi taflinu við en liðið mætir KR í bikarnum í vikunni. „Maður vonar að Jökli gangi sem allra best.“