
Real Madrid hefur hafið beinar viðræður við Jose Mourinho um að taka við liðinu á ný.
Samkvæmt Fabrizio Romano og Marca gæti ákvörðun um nýjan stjóra verið tekin strax eftir El Clasico gegn Barcelona á sunnudag, sérstaklega ef Real Madrid missir endanlega af spænska meistaratitlinum þar, sem gæti vel gerst.
Mourinho er sagður efstur á blaði hjá félaginu, en hann hefur samkvæmt fréttum látið Real Madrid í té ákveðin skilyrði, eigi hann að taka við. Vill hann meðal annars hafa mikið að segja um leikmannakaup og þjálfarateymið.
Alvaro Arbeloa er sem stendur stjóri Real Madrid til bráðabirgða.