
FIFA hefur staðfest að bann sem UEFA setti argentínska leikmanninn Gianluca Prestianni í verði framlengt á heimsvísu.
Prestianni, sem leikur með Benfica, fékk sex leikja bann eftir atvik í Meistaradeildinni þar sem hann lét niðrandi ummæli falla í garð Vinicius Junior hjá Real Madrid.
UEFA taldi brotið alvarlegt og óskaði eftir því að bannið gilti einnig utan Evrópu, sem FIFA hefur nú samþykkt.
Ef Prestianni verður valinn í HM-hóp Argentínu missir hann af fyrstu tveimur leikjum liðsins á mótinu í sumar, gegn Alsír og Austurríki. Hann gæti snúið aftur í lokaleik riðilsins gegn Jórdaníu.
Leikmaðurinn hefur neitað ásökunum um kynþáttafordóma, en UEFA taldi hegðun hans brot á agareglum sambandsins.