
Arsene Wenger, fyrrum stjóri og goðsögn Arsenal, segir að góð vörn, agi og hungur hafi skilað liðinu alla leið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
Skytturnar lögðu Atletico Madrid 1-0 á Emirates-leikvanginum í undaúrslitunum í gær og unnu einvígið samanlagt 2-1.
„Arsenal vildi þetta meira og var ákveðnara í návígjunum. Við sögðum fyrir leik að lykillinn væri sterkur varnarleikur og þeir héldu hreinu. Atletico þurfti mark á 45 mínútum en fékk varla færi,“ sagði Wenger eftir leik.
„Þetta var verðskuldaður sigur. Arsenal var betra liðið yfir báða leikina,“ bætti hann við.
Wenger blandaði sér einnig í umræðuna um fagnaðarlæti. Einhverjir hafa gagnrýnt liðið fyrir að fagna því of vel að komast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Sagði Frakkinn eðlilegt að fagna eftir leik en sagði að svo þyrfti öll einbeiting að færast á leikina framundan.
Arsenal mætir Paris Saint-Germain eða Bayern Munchen í úrslitaleiknum þann 30. maí.