
Wesley Fofana gæti farið frá Chelsea í sumar, en félagið er opið fyrir því að selja hann.
Félagaskiptasérfræðingurinn Sacha Tavolieri segir frá þessu og jafnframt að Barcelona hafi áhuga á varnarmanninum.
Fofana, sem er 25 ára gamall, gekk í raðir Chelsea árið 2022 frá Leicester á 75 milljónir punda. Hann hefur þó átt erfitt uppdráttar á Stamford Bridge.
Tavolieri segir að verðmiðinn á honum fyrir sumarið sé um 25 milljónir punda. Það á eftir að koma í ljós hvort Barcelona eða annað félag greiði það.
Chelsea þarf líklega að selja nokkra leikmenn í sumar þar sem félagið missir af Meistaradeildarsæti.