
A-landslið karla mætir Japan í vináttuleik á þjóðarleikvanginum í Tókýó 31. maí næstkomandi.
Stuðningsmenn íslenska liðsins sem ætla á leikinn geta keypt miða í gegnum miðasöluvef KSÍ og opnar fyrir sölu aðgöngumiða í hádeginu á þriðjudag. Kaupandinn fær miðana senda með tölvupósti í aðdraganda leiksins.
Ísland og Japan hafa mæst þrisvar sinnum áður í A landsliðum karla og hafa Japanir unnið þrjá sigra.
Síðasta viðureign liðanna var í Osaka í febrúar 2012 og lauk leiknum með 3-1 sigri heimamanna. Japanska liðið vann 3-2 sigur á City of Manchester Stadium í Englandi árið 2004.
Fyrsta viðureign liðanna var á Laugardalsvelli árið 1971 og unnu gestirnir þá tveggja marka sigur fyrir framan tæplega 6 þúsund áhorfendur.