fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Pressan

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það

Pressan
Mánudaginn 11. maí 2026 07:00

Úkraínskir hermenn í Kursk búnir að taka rússneska fánann niður. Skjáskot/X

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Apríl var góður fyrir Úkraínumenn að mörgu leyti. Fyrst samþykkti ESB að veita þeim risastórt lán, þeir gerðu góða samninga við ríki við Persaflóa, sem á að tryggja framtíð varnarmálaiðnaðarins, og í fyrsta sinn síðan í ágúst 2024 náðu þeir meira landsvæði úr klóm Rússa en Rússar náðu að leggja undir sig.

Bandaríska hugveitan Institute for the Study of War skýrir frá þessu. Hún segir að Úkraínumenn hafi náð 116 ferkílómetrum lands úr klóm Rússa sem hafi á sama tíma lagt 28 ferkílómetra undir sig.

Jørgen Meedom Staun, lektor við danska varnarmálaskólann, sagði í samtali við Jótlandspóstinn að þetta bendi til að hernaðartaktík Rússa virki ekki lengur.

Hugveitan segir að veðrið geti hafa komið við sögu varðandi gengi herjanna á vígvellinum í apríl. Hörðum og köldum vetri hafi lokið og við tekið vor sem gerði jarðveginn blautan og því erfitt fyrir Rússa að sækja fram. Hugveitan bendir einnig á að Rússar hafi áður unnið á í maí og júní þegar jarðvegurinn þornar og að svipuð staða geti komið upp að þessu sinni.

Hugveitan segir einnig að auk veðursins hafi Rússar breytt um taktík og beini nú áherslum sínum frekar að aðgerðum sem fái fólk til að trúa að þeir vinni sífellt á.

Staun sagðist kannast við þetta og sagði: „Það er greinilegt að þetta er ekki svo auðvelt hjá Rússum lengur. Sú taktík, sem þeir byrjuðu að nota fyrir löngu, og sem færði þeim smávegis landvinninga, þar sem maður hendir bara nógu mörgum hermönnum inn á vígvöllinn og sætti sig við mannfallið sem fylgdi, þessi taktík virkar bara ekki lengur.“

Hann sagði að Rússar hafi átt erfitt með að halda varnarlínum sínum að undanförnu vegna þess að Úkraínumönnum hafi tekist vel upp við árásir langt að baki víglínunni, á birgðageymslur og eldsneytisgeymslur, svo Rússar eigi erfiðara með að flytja skotfæri og vistir til víglínunnar.

Hann sagði einnig mikilvægt að Úkraínumenn hafi tekið miklum framförum á tæknisviðinu og hafi tekist að vinna land vegna þess. Þeir finni upp á nýjum hlutum og svo sjái Rússar það en geti ekki gert neitt við því. Það líði tími þar til þeir geta uppfært kerfin sín til að þau geti tekist á við þá nýju ógn sem stafar af Úkraínumönnum en þá finni Úkraínumenn upp á einhverju nýju aftur. Þarna séu Úkraínumenn með forystuna í augnablikinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Vilja gera Plútó að plánetu á nýjan leik

Vilja gera Plútó að plánetu á nýjan leik
Pressan
Í gær

Svona lengi getur þú setið áður en það verður hættulegt

Svona lengi getur þú setið áður en það verður hættulegt
Pressan
Í gær

Að borða sama matinn daglega getur haft áhrif á þyngdartap

Að borða sama matinn daglega getur haft áhrif á þyngdartap
Pressan
Fyrir 2 dögum

Veitingahúsaeigandi í Houston talinn hafa myrt fjölskyldu sína

Veitingahúsaeigandi í Houston talinn hafa myrt fjölskyldu sína
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kynlífsleikur endaði með ósköpum: „Þetta var það sem hann vildi“

Kynlífsleikur endaði með ósköpum: „Þetta var það sem hann vildi“