

„Þyngdarhlutlaus nálgun snýst um að setja heilsuna í forgrunn, en ekki vigtina. Við eigum að einbeita okkur að heilsuvenjum, streitustjórnun, svefni og næringu frekar en að elta tölu sem við höfum enga stjórn á.“
Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, fyrrverandi formaður Samtaka um líkamsvirðingu, rifjar upp samskipti við Ölmu Möller þáverandi landlækni og yfirlækni hjá embættinu í nýjasta þætti í hlaðvarpinu Karlmennskan.
„Það var hreinlega lesið yfir hausamótunum á okkur: „Tara, offita er alvarlegur og lífshættulegur sjúkdómur. Við þurfum að hafa það á hreinu.“ Ég bara fraus. Öll mín menntun, fagleg reynsla og sú reynsla sem fólk hafði treyst mér fyrir var hreinlega gerð að engu á þessum fundi,“ segir Tara og heldur áfram:
„Fólk talar alltaf um hvað þetta hlýtur að hafa verið erfitt fyrir mig. Ógeðið sem að ég varð fyrir í fjölmiðlum og kommentakerfinu og bara, þú veist, nauðgunarhótanir eða símtöl frá nafnlausum aðilum bara gargandi á mig. Og það var ógeðslegt og hafði auðvitað mikil áhrif á mig. En ekkert hafði jafn djúpstæð áhrif á mig og þessi framkoma af hálfu heilbrigðisstarfsfólks eða yfirvalds í heilbrigðisþjónustu. Þegar ég hætti og fer í mína sjálfsvinnu, þá þurfti ég aldrei áfallaúrvinnslu út af einhverju sem gerðist í kommentakerfinu. En þetta þurfti ég áfallaúrvinnslu á. Af því að ég var gerð að engu.“
Tara Margrét lýsir því að henni hafi liðið eins og hún hefði brugðist þeim sem treystu á hana og velti fyrir sér hvort að hún hefði verið of róttæk til að ná áheyrn.
Tara Margrét segist hafa verið vonsvikin þegar Samtökum um líkamsvirðingu var ekki boðið að vera með í starfshópi sem lagði grunninn að þingsályktunartillögu sem Alma Möller, sem nú gegnir embætti heilbrigðisráðherra, lagði fram á Alþingi í vetur.
„Þessi þingsályktunartillaga er rosalega illa samsett spilaborg sem myndi aldrei standa af sjálfri sér. Límið sem heldur henni saman er fitufælni samfélagsins og okkar eigin fitufordómar.“
Tara Margrét segir það núna hafa verið létti, að hafa ekki fengið að vera með:
„Þetta var mjög frelsandi fyrir mig. Af því að það hefði ekki breytt neinu þó svo ég hefði verið með af því að það átti aldrei að hlusta. Það var bara eitthvað agenda þarna. Og ég er eiginlega bara alveg ótrúlega fegin að hafa ekki verið með í dag.“
Munum verða enn feitari
Tara Margrét hefur litla trú á aðgerðum heilbrigðisráðherra sem hún segir að gangi út á sjúkdómsvæðingu og öfgafullum megrunarkúrum undir yfirskini heilsubótar:
„Við erum alltaf að reyna að endurskýra öfgafulla megrunarkúra sem eitthvað annað en þeir raunverulega eru. Það mun koma verulega í hausinn á okkur og eftir fimm til tíu ár munum við sjá að þetta hefur haft alvarlegar afleiðingar.“
Færir hún rök fyrir því að líkaminn sé hannaður til að stjórna þyngd okkar og allar tilraunir til að hafa áhrif á hana upplifir líkaminn sem tráma og þyngdarmissirinn endist vanalega aðeins tímabundið og síðan þyngist fólk enn frekar.
„Líkaminn upplifir þetta sem trauma og reynir allt til að halda okkur á lífi. Afleiðingin er yfirleitt sú að við þyngjumst enn meira.“
Tara Margrét segist aðspurð búin að missa vonina um að áherslur stjórnvalda gagnvart offitu muni breytast á hennar lífsleið.
„Ég held að það verði ekki á mínum lífstíma. Bara því miður. Ég er mjög vonlaus já. Þetta er barátta sem ég fór út í full af eldmóð og krafti og vilja og ég tapaði henni. Það er bara þannig. Og síðasta smiðshöggið í baráttunni minni var tekið með þessari þingsályktunartillögu.“