fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Ný kynslóð lyfjaskammtara á markað

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 29. apríl 2026 15:44

Diljá Guðmundardóttir, sérfræðingur í heilbrigðistækni hjá Öryggismiðstöðinni, með nýja rafræna lyfjaskammtarann.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Öryggismiðstöðin er þessa dagana að kynna nýja kynslóð rafrænna lyfjaskammtara inn á íslenskan markað. Lyfjaskammtarinn hefur þegar verið tekinn í notkun í Skandínavíu og var meðal annars nýlega valinn til notkunar fyrir íbúa Oslóar. Kemur þetta fram í fréttatilkynningu.

Notkun rafrænna lyfjaskammtara hefur aukist jafnt og þétt frá því þeir komu fyrst á íslenskan markað fyrir um fimm árum. „Tækin hafa sannað gildi sitt bæði fyrir heilbrigðiskerfið og notendur. Fyrir heilbrigðiskerfið hafa þau meðal annars minnkað umtalsvert þörf á innlitum heimaþjónustu, á sama tíma og tæknin eykur öryggi, lífsgæði og bætir meðferðarheldni hjá notendum,“ segir Diljá Guðmundardóttir, sérfræðingur í heilbrigðistækni hjá Öryggismiðstöðinni.

Lyfjaskammtarinn er hannaður með einfaldleika að leiðarljósi og er bæði notendavænn fyrir starfsfólk og þá sem nota hann daglega. Hann er léttur, meðfærilegur, allar nauðsynlegar leiðbeiningar aðgengilegar á stórum skjá á tækinu og það tekur innan við mínútu að fylla á hann fyrirframpökkuðum lyfjarúllum, að sögn Diljár. Allt eru þetta eiginleikar sem starfsfólk heimaþjónustu og notendur taka fagnandi.

„Þessi nýja kynslóð lyfjaskammtara hefur fengið mjög góðar viðtökur bæði hérlendis og á Norðurlöndum. Hann er þegar kominn í notkun í Noregi og Svíþjóð, þar sem hann er að reynast mjög vel, og við erum nú þegar byrjuð að kynna hann víða um land,“ segir Diljá.

Hún segir að með þessari nýjung stígi Öryggismiðstöðin mikilvægt skref í átt að auknu öryggi, betri möguleikum á sjálfstæðri búsetu eldra fólks í heimahúsum og bættri þjónustu í lyfjagjöf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Fótur hlaupakonu í Londonmaraþoninu „sprakk“ – Skórinn alblóðugur

Fótur hlaupakonu í Londonmaraþoninu „sprakk“ – Skórinn alblóðugur
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Guðni svarar Ólafi fullum hálsi og sakar hann um ósannindi – „Einfaldlega staðlausir stafir“

Guðni svarar Ólafi fullum hálsi og sakar hann um ósannindi – „Einfaldlega staðlausir stafir“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Afhjúpa „rauða hverfið“ í Reykjavík – Nágrannar reyna að fæla vændiskaupendur frá með skjávarpa

Afhjúpa „rauða hverfið“ í Reykjavík – Nágrannar reyna að fæla vændiskaupendur frá með skjávarpa
Fréttir
Í gær

Sýndi af sér lostugt athæfi á almannafæri og játaði aftur vörslur á miklu magni af barnaníðsteiknimyndum

Sýndi af sér lostugt athæfi á almannafæri og játaði aftur vörslur á miklu magni af barnaníðsteiknimyndum
Fréttir
Í gær

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“
Fréttir
Í gær

Hildur ómyrk í máli: „Það þarf að taka erfiðar ákvarðanir, það er alveg ljóst“

Hildur ómyrk í máli: „Það þarf að taka erfiðar ákvarðanir, það er alveg ljóst“