

Alræmdi ástralski dansarinn Raygun hefur nú misst vinnuna hjá einni virtustu menntastofnun Ástralíu. Uppsögnin mun tengjast niðurskurði en Raygun starfaði sem fyrirlesari í fjölmiðlun og dægurmenningu. Frá þessu greinir news.com.au.
Uppsögn sem þessi væri líklega ekki fréttnæm ef ekki væri fyrir frægð Raygun, sem heitir réttu nafni Rachael Gunn, en hún setti allt á hliðina þegar hún steig dans á Ólympíuleikunum í París sumarið 2024 og hlaut núll stig fyrir vikið. Hún keppti í breikdansi og þótti áhorfendum lítið til sértakra tilþrifa hennar koma, einkum þegar hún hoppaði um svipið eins og kengúra. Dansinn varð í kjölfarið nánast ótæmandi uppspretta háðs og gríns í netheimum en grínið þótti oft og tíðum rætið. Raygun varð fyrir miklu áreiti í kjölfarið og var sökuð um að hafa svindlað sér inn á leikana þar sem sumum þótti ljóst að hún hefði engan veginn þá hæfileika og getu sem Ólympíufarar eiga að búa yfir.
Raygun hafði fyrir uppsögnina starfað við háskólann í Macquarie í rúman áratug en hún er með doktorsgráðu frá sama skóla. Doktorsverkefni hennar rýndi menninguna í kringum breikdans í Sydney út frá gleraugum kynjafræðinnar. Dansarinn hafði áður ákveðið, í kjölfar Ólympíuleikanna, að leggja dansskóna á hilluna.
Sjá einnig: Umdeildi Ólympíu-breikdansarinn varð höfð að háði og spotti