

Albert Guðmundsson hefur fjárfest í glæsilegri þakíbúð í miðborg Reykjavíkur og keypt eign í nýju fjölbýlishúsi við Frakkastíg 1 í 101 Reykjavík. Viðskiptablaðið segir frá.
Kaupin fóru fram í gegnum félag hans, Albert ehf., og nam kaupverðið 560 milljónum króna. Það jafngildir um 1,7 milljónum króna á hvern fermetra.

Íbúðin er alls 327 fermetrar að stærð og spannar tvær efstu hæðir hússins, sjöttu og sjöundu hæð. Hún nær yfir allan gólfflöt beggja hæða og telst því ein af stærri og glæsilegri íbúðum verkefnisins.

Eigninni fylgja tvær rúmgóðar þaksvalir auk aðgengis að þaki hússins. Á efri svölunum er jafnframt gert ráð fyrir tengi fyrir heitan pott.
Albert virðist því hafa fjárfest myndarlega utan vallar samhliða atvinnumannaferli sínum á Ítalíu.