
Þú þarft að fara á fætur, gera þig kláran fyrir vinnu og það væri auðvitað gott að komast að á klósettinu. En jafnaldrinn fer sínar eigin leiðir og hefur ákveðið að vera reistur svona snemma dags og það getur verið ákveðið vandamál.
En þú ættir kannski að taka vel á móti morgunreisninni því hún getur verið vísbending um hversu gott testesterónjafnvægi líkamans er.
Þetta var rætt í hlaðvarpinu Man Alive og þar sagði Joe Marler, sem er 35 ára fyrrum atvinnumaður í ruðningi, að það gerist æ sjaldnar að hann vakni með reistan liminn. „Það gerist stöku sinnum, en ekki nærri því eins oft og áður,“ sagði hann.
Stjórnandi hlaðvarpsins, læknirinn Jeff Foster, sagði þá að testósterónmagnið í líkama karla minnki með aldrinum og það geti haft áhrif á hversu oft þeir vakna með morgunreisn.
Hann benti á að þar sem þetta gerist þá megi reikna með að morgunreisn sé ekki eins algeng þegar aldurinn færist yfir og á yngri árum en ef snöggar breytingar verði þar á, geti það verið vísbending um heilsufarsvandamál.
Metro spurði Jeff út í hversu oft karlar ættu að reikna með að vakna með reistan liminn , miðað við aldur þeirra.
Hann sagði að unglingspiltar og karlmenn á þrítugsaldri ættu að vakna með morgunreisn flesta daga ef ekki alla.
Á fertugsaldri megi reikna með að það gerist í rúmlega 50% tilvika og á fimmtugs- og sextugsaldri sé það tvisvar til þrisvar í viku.
Þeir sem eru á sextugsaldri mega reikna með morgunreisn einu sinni eða tvisvar í viku að hans sögn.
Hann sagði að góð þumalputtaregla sé að ef maður muni ekki hvenær maður vaknaði síðast með reistan lim, þá sé rétt að leita til læknis.