
Danska félagið Lyngby hefur keypt sóknamanninn Ísak Snæ Þorvaldsson frá Rosenborg í Noregi.
Ísak skrifar undir til 2029, en hann hefur verið á láni hjá Lyngby á leiktíðinni og skorað sjö mörk í 25 leikjum.
Forráðamenn Lyngby fagna kaupunum og segja Ísak, sem verður 25 ára gamall á næstu dögum, algjöran lykilmann.
Isak segist sjálfur mjög ánægður með að vera áfram hjá félaginu og lítur á Lyngby sem frábæran stað til að þróast sem leikmaður.
Lyngby er á toppi dönsku B-deildarinnar og á góðri leið með að tryggja sér sæti í úrvalsdeildinni á ný.