fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fókus

Gerðu plötu á einni helgi

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 23. apríl 2026 11:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hópur 18 ára stráka sem kalla sig Camp eru að semja tónlist saman. Þeir eru að gefa út sína fyrstu plötu sem kemur út á morgun, föstudag.

Það er mjög mismunandi hvernig og hve ungir meðlimir hópsins hófu sinn tónlistarferil, en flestir í hópnum hófu að semja tónlist að einhverju ráði þegar þeir byrjuðu í grunnnámskeiði hjá Tónhyl X fyrir 2-3 árum síðan.

,,Innblásturinn hjá okkur kemur frá bæði íslenskum og erlendum tónlistarmönnum, hvort sem það eru próduserar, söngvarar eða rapparar. Svo það má segja að innblásturinn sem mótar okkur komi úr ýmsum áttum. Það er ekkert eitt nafn sem kemur í huga þegar það er spurt ,,hverjar eru fyrirmyndir í tónlistinni”,en nöfnin sem maður heyrir mest eru tónlistarmenn eins og Aron Can, Flóni, Birnir, Bngrboy (Marteinn), Justin Bieber og Travis Scott,” segir Ísak Breki Ólafsson, einn meðlima sveitarinnar.

,,Camp er nafnið á hópnum okkar og kemur frá námskeiði hjá Tónhyl X sem hét X-Camp. Við fengum heila helgi í stúdíó hjá Tónhyl, til að semja tónlistina og gera plötu,” segir Ísak Breki.

Strákarnir nýttu tímann sannarlega vel og tóku ,,all-nightera”. ,,Það var lítið sofið þessa helgi, laugardagurinn í stúdíoinu var til dæmis frá klukkan þrjú að degi til fimm að morgni. Markmiðið með CAMP-inu var að láta plötu verða að veruleika. Við sömdum um 20 lög en enduðum á að master-a og klára sjö þeirra sem eru á plötunni,” segir Bjarni Gabríel Bjarnason, sem einnig er meðlimur í Camp.

Platan þeirra heitir CAMP: #001. ,,Hún er fjölbreytt í ljósi þess hve mismunandi stíl við höfum, það gerir hana fyrir vikið skemmtilegri og nær til fleira fólks og hópa. Ég vil meina það að platan muni hafa góð áhrif á framtíðina í tónlistarsenunni. Platan kemur út á föstudag, sem passar vel við anda tónlistarinnar,” segir Bjarni Gabríel enn fremur.

Söngvarar og rapparar sveitarinnar eru auk Ísak Breka og Bjarna Gabríels þeir Kristófer Örn Sverrisson (Tófer), Aron Fannar Gunnarsson, Arnór Orri Atlason (Nóri) og Benedikt Bjarni Melsted.

Pródúserar eru Jóhann Gunnar Kristjánsson (Flóki), Aron Snær Stefánsson og Baltasar Magnússon.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 5 dögum

„Krakkarnir sýndu veiðimennskunni mikinn áhuga“

„Krakkarnir sýndu veiðimennskunni mikinn áhuga“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“
Fókus
Fyrir 1 viku

Ari Edwald setur þakíbúðina á sölu

Ari Edwald setur þakíbúðina á sölu
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Bjartur: „Það var mikið áfall að vera tekinn frá mömmu“

Bjartur: „Það var mikið áfall að vera tekinn frá mömmu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Auglýsir fötin af sér í heimsóknum til krabbameinsgreindra barna og eftirlifenda hatursárásar á Bondi Beach – „Drottningin hlýtur að vera að velta sér í gröfinni“

Auglýsir fötin af sér í heimsóknum til krabbameinsgreindra barna og eftirlifenda hatursárásar á Bondi Beach – „Drottningin hlýtur að vera að velta sér í gröfinni“
Fókus
Fyrir 1 viku

Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands

Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands
Fókus
Fyrir 1 viku

Þessar bækur eru tilnefndar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar

Þessar bækur eru tilnefndar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar