

Pep Guardiola, stjóri Manchester City, hefur svarað gagnrýni Wayne Rooney eftir sigur liðsins á Arsenal og kallað ummælin „heimskuleg“.
City vann 2-1 sigur á Etihad með sigurmarki Erling Haaland og fagnaði lið og stuðningsmenn af miklum krafti. Gianluigi Donnarumma stökk meðal annars upp í stúkuna og leikmenn fögnuðu á áberandi hátt eftir leik.
Rooney sagði fagnaðarlætin hafa verið „örlítið yfir strikið“ en Guardiola var ekki sammála þeirri gagnrýni. „Fólk getur sagt hvað sem er jafnvel heimskulega hluti. Leikmenn fögnuðu því þeir vita hversu sterkur andstæðingurinn er,“ sagði hann.
Guardiola lagði áherslu á að mikilvægi leiksins réttlætti viðbrögðin. „Ef við hefðum ekki unnið hefði þetta verið búið. Nú erum við enn inni í baráttunni, auðvitað fögnum við.“
Hann bætti við að leikmenn ættu að njóta augnabliksins og að ekki ætti að bíða með gleðina þar til tímabilinu lýkur.
City er því áfram í harðri titilbaráttu og getur farið á toppinn með sigri í næsta leik.