fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Eyjan

Eyjólfur Ármannsson: Forgangsröðunin í gangagerð er skynsamleg og tekur á bráðum vanda

Eyjan
Þriðjudaginn 21. apríl 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forgangsröðun í gangagerð er skynsamleg. Þau jarðgöng sem sett eru í forgang leysa af hólmi stórhættulega vegi, vegi sem eru undir bröttum hlíðum og Vegagerðin þarf að hverjum morgni að kanna hvort þeir eru enn á sínum stað. Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:

Eyjólfur Ármannsson - 5
play-sharp-fill

Eyjólfur Ármannsson - 5

Við vikum aðeins að samgönguáætlun áðan. Það hefur mætt dálítið á þér í þeim málum, það er forgangsröðun í gangagerð og svona. Ertu að ná mjúkri lendingu í þessum málum eða er mikil spenna enn?

„Já, ég allavega, þegar við komum með forgangsröðunina í jarðgangamálunum þá breyttum við henni. Gildandi samgönguáætlun er frá 2020. Hún segir að Fjarðarheiðargöng eru þar í fyrsta sæti og Fjarðagöng í öðru. Svo kom tillaga 23 sem breytti þessu algjörlega, setti Fjarðagöng niður í sjöunda sæti, og Fljótagöng í annað sæti. En tillagan núna byggir á því að Fljótagöng séu í fyrsta sæti, Fjarðagöng og Súðavíkurgöng í öðru til þriðja sæti og svo Miklidalur og Hálfdán í fjórða sæti.

Við getum spurt okkur af hverju var ekki farið í jarðgöng frá 2020. Það var alltaf Fjarðarheiðargöng þar undir og síðasta ríkisstjórn notaði ekki Covid-peningana í jarðgangagerð sem þau hefðu getað gert líka. Við horfðum bara á þjóðarhagsmuni og hvað var fjárhagslega forsvaranlegt að gera hvað það varðar. Við byrjum þarna með göng sem eru Fljótagöng, 5,2 kílómetrar. Á meðan Fjarðarheiðargöngin eru um 13 kílómetrar, 13,4 kílómetrar, eða sex.“

Það er mikill kostnaðarmunur á þessu.

„Það er gríðarlegur kostnaðarmunur. Þetta voru 54 milljarðar og sennilega miklu hærra en það. og jarðgöngin fyrir austan, það var litið á þetta sem eina framkvæmd. Það eru skýrslur þarna til frá 2019, Seyðisfjarðargöng, valkostur og áhrif af Austurlandi, sem starfshópur gerði.“

Það þarf að líta á þetta sem eina framkvæmd.

„Já, það verður að gera það. Svo koma fleiri skýrslur sem segja til dæmis, þessi skýrsla frá 23, hún segir að Fjarðagöng séu byltingarkennd af því þau tengi saman tvær endastöðvar, Neskaupstað og Seyðisfjörð, við fáum hringtengingu með Fjarðagöngum. Þess vegna eru þau í öðru til þriðja sæti. Það er hringtenging og horfir á núverandi veg í Fjarðarheiði. Við fáum hann ekki með Fjarðarheiðargöngum. Við erum ekkert að afskrifa hann, við setjum hann bara aftar, topp fjögur.

Það sem við erum að gera með Fljótagöngum og Súðavíkurgöngum líka er bara gríðarleg náttúruvá sem er í þessum hlíðum. Vegagerðin þarf að keyra á hverjum einasta degi frá Siglufirði til að athuga hvort að vegurinn sé enn þá á sínum stað, í Almenningum og við Mánaskriður. Við erum raunverulega að gera það sama í báðum þessum jarðgöngum, gera það sama og við höfum gert með Ólafsfjarðarmúlann, með Ólafsfjarðargöngunum og svo Óshlíðina með Bolungarvíkurgöngunum. Taka þessa hlíðarvegi úr sambandi, hætta að nota þá, með jarðgangagerð. Og svo eru Fjarðagöngin, þá koma þau út á samfélagið líka og nýr vegur sem tengir þá Seyðisfjörð við verðmætasköpun í Mjóafirði og við Fjarðabyggð þar sem yfir 20% af útflutningstekjum þjóðarinnar koma, já, tengir þá við stórt atvinnusvæði. En þetta var forgangsröðin og ég hef ekki séð neinar forsendur til að breyta því.

Þetta var bara erfið ákvörðun og ég ber mikla virðingu fyrir þessari umræðu sem á sér stað. En það er líka önnur. Við erum líka að fara í miklar framkvæmdir, talsverðar framkvæmdir, fyrir austan líka og í öðrum landshlutum. Það vantar ekki.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund Logadóttir: Finn mig á miðjunni – er kannski meiri sáttasemjari en pólitíkus

Halla Hrund Logadóttir: Finn mig á miðjunni – er kannski meiri sáttasemjari en pólitíkus
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar Michael Jackson fór í klippingu

Nína Richter skrifar: Þegar Michael Jackson fór í klippingu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Kosningar unga fólksins

Thomas Möller skrifar: Kosningar unga fólksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Viðreisn kynnir áherslur sínar í Reykjavík: „Þessu ætlum við að snúa við“

Viðreisn kynnir áherslur sínar í Reykjavík: „Þessu ætlum við að snúa við“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Forysta kennara eins og LÍÚ – vilja ráða öllu og allir aðrir eru óupplýstir bjálfar

Orðið á götunni: Forysta kennara eins og LÍÚ – vilja ráða öllu og allir aðrir eru óupplýstir bjálfar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Eyjólfur Ármannsson: Kvótakerfið á að vernda stofna og stuðla að hagræðingu – líka tryggja byggð og atvinnu

Eyjólfur Ármannsson: Kvótakerfið á að vernda stofna og stuðla að hagræðingu – líka tryggja byggð og atvinnu
Hide picture