fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Eyjan

Eyjólfur Ármannsson: Myndi vilja sjá það sama hjá okkur og á Möltu

Eyjan
Mánudaginn 20. apríl 2026 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við erum framarlega í flugi og mikil samkeppni í flugi til og frá landinu. Því miður er ekki sömu sögu að segja af innanlandsflugi. Lítil flugfélög sem áður stóðu fyrir innanlandsflugi týna tölunni og óskandi væri að fleiri lítil flugfélög væru starfandi. Við getum verulega bætt umhverfið fyrir skipaskráningar og flug og byggt upp starfsemi í kringum það, eins og nokkur önnur ríki hafa gert. Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:

Eyjólfur Ármannsson - 4
play-sharp-fill

Eyjólfur Ármannsson - 4

„Við erum ótrúlega háð flugi, fámenn þjóð í stóru landi. Þetta er algjör grundvallarstoð fyrir landsbyggðina, að geta komið til Reykjavíkur og svo framvegis.“

Hér er ýmsa þjónustu, jafnvel á svona gervihnattaöld eins og við erum núna, að þá er það nú samt þannig að það er þjónusta sem er ekki hægt að sækja á netinu heldur.

„Nei, nei. læknisþjónusta og menningarviðburðir og svo er bara hjarta Íslands slær inn á höfuðborgarsvæðinu. Það búa 82% þjóðarinnar á Hvítársvæðinu og það er mikilvægt að landsbyggðin geti komið hérna til höfuðborgarinnar, sé með greiðan aðgang að höfuðborginni. En líka samkeppnin. Það mættu vera fleiri flugfélög náttúrlega, minni flugfélög starfandi.“

Manni sýnist þau vera bara í útrýmingarhættu, öll þessi litlu flugfélög sem eitt sinn voru.

„Ég myndi gjarnan vilja sjá fleiri lítil flugfélög. Við erum með 2,5 milljónir erlenda ferðamanna sem koma hingað í land. Útsýnisflug og þá minni staðir, að það sé hægt að fljúga meira með fólk. En það er ákveðið reglukerfi, regluverk, sem gerir bara þyngri reksturinn á félögunum. En svo í millilandafluginu þá eru 26 flugfélög að fljúga á Keflavík. Þar er gríðarleg samkeppni.“

Það er samkeppni náttúrlega sem hefur lækkað fargjöld, ég ætla ekki að draga úr því hvað Icelandair hefur gert fyrir íslenska ferðaþjónustu. En það er náttúrlega þessi samkeppni. Icelandair gæti aldrei kynnt Ísland eins og sú kynning sem Ísland fær út á það að það eru erlend flugfélög sem eru að markaðssetja ferðir hingað.

„Já. Icelandair hefur náttúrlega verið í fararbroddi á markaðssetningu Íslands og bara stórkostleg saga sem við eigum bæði með Loftleiðum og Flugfélagi Íslands og mjög merkileg saga. Og við verðum að byggja á þessari arfleifð, halda áfram að vera í fremstu röð hvað varðar alþjóðaflug og standast þessa samkeppni úti í heimi. Við eigum að geta gert það eins og öll önnur vestræn ríki.

Við sjáum það sem er að gerast á Möltu, þeir hafa náð að byggja þess vegna ákveðinn svona markað hvað varðar flugið. Ég myndi vilja sjá jafnvel eitthvað svipað og á Íslandi.“

Er þetta ekki þá eins og með skipaskrána? Eitthvað sem við verðum að kafa dálítið ofan í.

„Það er líka með skipaskrána. Ég fer til Kýpur í lok mánaðarins, þeir hafa byggt bara heilmikið í kringum sína alþjóðlegu skipaskrá og Norðmenn líka, en Norðmenn eru gríðarlega siglingaþjóð.

Þeir eru með alþjóðlega skipaskrá og það gekk ágætlega. Það er bara hagsmunamat hjá þeim og líka í Færeyjum. Færeyingar eru með um 90 skip, norska skipaskráin er enn þá stærri. Það eru alls konar tækifæri í kringum þetta, alla vega Kýpur hefur tekist að gera það þannig.

Það eru lögmannsstofur og alls konar þjónusta í kringum þessi skipafélög sem eru skráð þarna. Vonandi getum við eitthvað komið þessu af stað og ég held að þetta séu bæði þessi atriði og líka bara samkeppnishæfni íslensks samfélags. Við verðum að fara að hugsa um það.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Vælandi út af öllu – verður Guðrúnu ýtt út á næsta landsfundi?

Orðið á götunni: Vælandi út af öllu – verður Guðrúnu ýtt út á næsta landsfundi?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson: Umsögn Landskjörstjórnar með öllu marklaus – Bara spurning um ásetning eða vanþekkingu

Þorsteinn Pálsson: Umsögn Landskjörstjórnar með öllu marklaus – Bara spurning um ásetning eða vanþekkingu
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Opna dyrnar eða loka þeim?

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Opna dyrnar eða loka þeim?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Þýðir ekkert að æpa og góla hvert á annað – verðum að koma saman og við gerum það yfirleitt á miðjunni

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Þýðir ekkert að æpa og góla hvert á annað – verðum að koma saman og við gerum það yfirleitt á miðjunni
Hide picture